Þar sem Hugi ákvað enn einu sinni að týna greininni minni þarf ég að pikka þetta inn aftur…

ATH! þessi grein er ekki eftir stjórnandan Azmodan heldur er höfundur Brjánn og skal því beina öllum spurningum að honum.

Allavega, það er sem sagt komið á hreint að næsta Warhammer Fantasy mót verður haldið laugardaginn 11. janúar. Það eina sem gæti breytt því er ef eitthvað ljótt magic the gathering mót verður þann dag, þá frestast fantasy mótið fram á sunnudaginn 12. jan. Kemur í ljós milli jóla og nýárs.

Herjir verða 2000 pt, eftir fjölda áskoranna um slíkt undanfarið. Bara þannig að þið vitið það þá barðist Gunni hatrammlega fyrir því að fá að halda tveggja daga mót, en það var einfaldlega skotið í kaf af Nexus mönnum (Júlla) af einhverjum ástæðum.

Á þessu móti verða nýju reglurnar sem við höfum verið að ræða hérna prófaðar í fyrsta skipti. Stig fyrir málingu og skemmtilega spilara, þó að flest stig gefi auðvitað að ganga þannig frá her andstæðingsins að elstu menn muni varla annað eins :)

Athugið að mótið hefst sennilega klukkan 10 um morguninn. Það er ekki til að refsa þeim sem fá sér í glas kvöldið áður, heldur til að það náist að hafa 2000 pt mót af einhverju viti á einum degi. Svo verður líka tekið mjööööög hart á lengd bardaganna, stoppað og talið miskunarlaust í miðju turni ef tíminn er búinn.

Þó að reglurnar nýju hafi birst hér áður ætla ég að láta þær flakka með hér að neðan til að þið getið fengið nýjasta eintakið.

Kíkið á ‘Atburðir’ kubbinn :)

Kveðja

Brjánn Jónasson

-*-*-*-*-

Warhammer Fantasy Spilamót
Almennar reglur

Mótið fer fram laugardaginn 11. janúar 2003. Spilamennska stundvíslega klukkan 10 og verður spilað fram á kvöld.

Leyfilegir herjir:
Herjir verða 2000 stig, ekki leyfilegt að fara yfir það hámark.

Nota skal aðal-listana úr þeim bókum sem út eru komnar, ekki er heimilt að nota aukalista aftast úr bókunum. Nota skal nýjasta löglega eintak af þeim listum sem ekki er komin út bók fyrir, hvort sem listinn er í Ravening Hordes, White Dwarf eða öðrum hvorum Annualnum. Einungir listar sem eru ‘official’ eru leifðir. Nefndar persónur (special characters) verða ekki leifðar.

Dogs of War sveitir eru aðeins leifðar í Dogs of War herjum. Ekki er leyfilegt að kaupa þær í öðrum herjum, jafnvel þótt það standi í listunum fyrir herinn.

Skráning:
Áður en mótið hefst eiga spilarar að skila inn einu eintaki af hernum sínum í læsilegu formi til dómara. Þeir verða að halda eftir öðru eintaki til að nota á mótinu. Listarnir verða að vera löglegir og læsilegir, ekki t.d. helstu atriði hripuð niður á klósettpappír!

Ekki gleyma að taka með ykkur allt sem þið þurfið til að spila. Reglubókina, bókina fyrir ykkar her, málband, teninga og templates í það minnsta.

Módel:
Módel sem notuð eru á mótinu eiga að vera það sem þau eru. Ekki er nauðsynlegt að nota Games Workshop módel en ef notuð eru önnur módel verða þau að líta út fyrir að vera það sem þau eiga að vera.

Ef módelin eru ekki til, eða spilarinn á þau ekki, er hægt að umbreyta öðrum módelum svo ekki fari á milli mála hvað þau eru, eða nota einfaldlega ekki sveitina. Raunvörulegir hershöfðingjar höfðu ekki alltaf það sem þeir vildu helst í sínum herjum…

Spilun:
Hver bardagi á ekki að standa lengur en dómarinn segir fyrir um. Ef bardagi er ekki búinn tíu mínutum áður en næsti bardagi á að hefjast getur dómari stöðvað leikinn og beðið menn um að telja.

Bardagar verða hefðbundnir bardagar (pitched battle) og nota reglurnar af bls 199-200 í reglubókinni hvað varðar uppröðun hers og aðrar reglur.

Spilað verður á bæði 5’x 4’ og 6’x 4’ borðum. Landsvæði verður sett upp fyrirfram á hverju borði og ekki er leyfilegt að breyta því. Athugið að landsvæði getur verið mjög mismunandi eftir borðum svo best er að taka fjölbreytta herji sem geta höndlað það.

Fyrir hvern bardaga ættu menn að ræða herjina sín á milli, og útskýra sérstakar reglur fyrir herjina, og sveitir í hernum, sé þess óskað.

Eftir hvern bardaga eiga spilarar að skiptast á listum fyrir herjina. Það er gott tækifæri til að athuga hvort herinn er ekki löglegur, og hvort rétt var talið eftir bardagann.

Eftir bardaga þarf að skrá stig sem fengust fyrir spilamennsku á þar til gert blað. Stigin eru veitt eftir því hversu stór sigurinn eða tapið var, notið töfluna á bls 198 í reglubókinni.
-Slátrun (massacre): Sigurvegari fær 20 stig, sá sem tapar 0.
-Stórsigur (solid victory): Sigurvegari fær 17 stig, sá sem tapar 3.
-Sigur (minor victory): Sigurvegari fær 13 stig, sá sem tapar 7.
-Jafntefli (draw): Báðir spilarar fá 10 stig.

Ef sú staða kemur upp að fjöldu spilara stendur á oddatölu þarf einn spilari að sitja hjá í hverri umferð. Spilarinn er valinn af handahófi, og hver spilari þarf í mesta lagi að sitja hjá einu sinni. Sá sem situr hjá fær 17 stig.

Að lokum þarf eftir hvern bardaga að fylla inn blað um hversu skemmtilegur mótspilarinn var, og skila því inn. Það getur gefið frá 0 stigum upp í 3 stig aukalega fyrir hvern bardaga.

Verðlaun:
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætinn, eftir að reiknuð hafa verið inn stig fyrir skemmtilegasta mótspilarann og málun. Einnig verða veitt verðlaun fyrir skemmtilegasta mótspilarann og flottasta herinn.

Stig fyrir málingu:
Gefin eru allt að 10 stig fyrir málaða herji á mótinu.

Fullmálaður her fær 8 stig. Miðað er við að lágmarki 3 liti, og að plattarnir séu málaðir og með grasdufti (flock) eða álíka frágangi í það minnsta.

Þeir herjir sem ekki eru fullmálaðir, en eru samt að einhverjum hluta málaðir geta fengið stig sem hér segir.

Talið er saman hversu margar ‘deployments’ (það er hollin sem þú setur í einu á borðið áður en bardaginn byrjar) herinn hefur í bardaga. Munið að allar vígvélar (en ekki stríðsvagnar) teljast einn hópur og allar hetjur annar. Svo er tekið hlutfall af máluðum ‘deployment’ hlutum í hernum og gefin stig.

-Ef 0-9% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 0 stig
-Ef 10-49% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 2 stig
-Ef 50-99% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 4 stig
-Ef herinn er fullmálaður fær hann 6 stig.

Dæmi: Her sem er með fjórar sveitir af fótgönguliði, tvær riddaraliðssveitir, tvær fallbyssur og tvær hetjur er samtals með 8 sveitir til að setja niður (4+2+1+1). Ef hann er með eina sveit af fótgönguliði og eina riddarasveit málaða telst það 25%, og gefur 2 stig. Ef hann er með tvær fótgönguliðasveitir, eina riddarasveit og allar hetjurnar málaðar er það 50% og þar af leiðandi 4 stig.

Flottir herjir
Á einhverjum tímapunkti á meðan mótinu stendur verða allir þeir sem eru með fullmálaðan her beðnir um að stilla upp hernum sínum. Allir spilarar fá þá tíma til að skoða herjina, og fá síðan blað þar sem þeir gefa hverjum her stig fyrir það hversu flottur þeim finnst herinn vera.

Sá her sem fær flest stig fær þrjú auka málingarstig, sá næst-flottasti fær tvö auka stig, og sá í þriðja sæti fær 1 auka stig.

Allar frekari upplýsingar gefa Gunnar Traustason í síma 863-6599 og Brjánn Jónasson í síma 696-1305