Í þessarri grein kalla ég warhammerheiminn/warhammerjörðina/plánetuna; Terra, eins og hún er kölluð í warhammer 40k reglubókinni.

Hinir gömlu (The Old Ones) komu til Terra fyrir tíma chaos og áður en dvergar og álfar kunnu að tala. Hinir gömlu voru meistarar alheimsins á þessum tíma. Tækni þeirra var búinn að ná lengra en nokkur getur ýmindað sér og þeir voru búnir að ná fullkomnu valdi yfir galdramættinum. Þeir komu til terra á geimskipum sínum í gegnum warp-gate(veit einhver góða þýðingu á þessu?) sem þrælar þeirra höfðu byggt fyrir ofan norður-pólinn.
Eftir að þeir voru komnir í gegnum warp-gate-ið flugu þeir til Lustriu og ákváðu að byggja borgir sínar djúpt í regnskógunum sem uxu þar, þeir kusu Lustriu því aðstæður í regnskógunum hentuðu tækninni þeirra best.
Þeir notuðu borgirnar sem höfuðstöðvar, því þeir ferðuðust mikið um terra til að sjá við hvernig aðstæður dýrin sem þeir voru að skapa þurftu að búa við. Á leið sinni um terra hittu þeir forfeður álfa og dverga ,sem höfðu búið á terra fyrir, og nokkurnvegin ólu þá upp. Þeir gerðu það samt leynilega, þeir voru alltaf í felum og sýndu aðeins sjálfa sig til að kenna þeim undirstöður siðmenningarinnar þ.á.m. tungumál og verslun. Hinir gömlu voru tilbeðnir sem guðir sköpunarinnar af álfum og dvergum á þeim tíma. En þeir eru nú á tímum aðeins goðsagnir í bókum álfa og dverga en einhverjir af þeim gætu verið tilbeðnir sem guðir ennþá undir öðru nafni, hver veit?
Hinir gömlu höfðu reyndar tekið með sér aðstoðarmenn, sem þeir voru búnir að skapa áður en þeir komu til Terra en það voru Slann, og þótt að þeir séu meistarar galdranna á Terra núna þá voru þeir bara þjónar hinna gömlu með smá brot af mætti meistara sinna! Slannarnir höfðu byggt borgirnar sem meistarar þeirra höfðu hannað. Þeir höfðu byggt warp-gate-ið og haldið því gangandi. Þeir höfðu meir\'að segja fært jörðina nær sólinni til að gera Terra hlýrri.

Öll heimsveldi líða undir lok og það gerðu hinir gömlu líka. Það byrjaði með því að warp gate-ið eyðilagðist en enginn veit afhverju, hinir gömlu misstu stjórn á því og mikill straumur djöfla og drísla rann útur hliðinu, öld Chaos var runninn upp. Hinir gömlu voru drepnir af djöflum, trúlega chaos guðunum sjálfum. Skiplögðu veröld hinna gömlu hafði verið eytt og í staðinn var kominn veröld sem einkendist af stríði og ringlureið. Menn, nýjasta sköpunarverk hinna gömlu var skilið eftir óklárað og þar af leiðandi urðu þeir veiklaðastir af siðmenntuðu tegundunum og urðu að læra af hinum (sem sagt álfum og dvergum) til að geta lifað af.


Svona var sem sagt warhammer heimurinn skapaður :)