Howdy

Ég ætla að setja hérna inn mínar hugmyndir að breyttum og bættum reglum fyrir Warhammer Fantasy spilamótin. Ég vona að þið séuð til í að lesa þetta yfir og láta mig vita hvað ykkur finnst. Bæði þið sem eruð ánægðir og hinir óánægðu.

Þetta eru sem sagt tvö skjöl, annars vegar reglurnar og hins vegar bleðill sem á að fylla út eftir hvern bardaga til að finna út hversu skemmtilegur mótspilarinn var.

-*-*-*-*-

Almennar reglur

Mótið fer fram xx. – xx. janúar 2002. Spilað verður bæði á laugardegi og sunnudegi, og hefst spilamennska stundvíslega klukkan 11 báða dagana

Leyfilegir herjir:
Herjir verða 2000 stig, ekki leyfilegt að fara yfir það hámark.

Nota skal aðal-listana úr þeim bókum sem út eru komnar, ekki er heimilt að nota aukalista aftast úr bókunum.. Nota skal nýjasta eintak af þeim listum sem ekki er komin út bók fyrir, hvort sem listinn er í White Dwarf eða öðrum hvorum Annualnum. Nefndar persónur (special characters) verða ekki leifðar.

Dogs of War sveitir verða ekki leifðar í öðrum herjum en Dogs of War. Ekki er unnt að kaupa þær sem séhæfðar (special) eða sjaldgæfar (rare) sveitir í öðrum herjum.

Skráning:
Áður en mótið hefst eiga spilarar að skila inn einu eintaki af hernum sínum í læsilegu formi til dómara. Þeir verða að halda eftir öðru eintaki til að nota á mótinu. Listarnir verða að vera löglegir og læsilegir, ekki helstu atriði hripuð niður á klósettpappír!

Ekki gleyma að taka með ykkur allt sem þið þurfið til að spila. Reglubókin, bókinn fyrir ykkar her, málband, teninga og templates í það minnsta.

Módel:
Nota skal rétt módel á mótinu. Ekki er nauðsynlegt að nota Games Workshop módel, en skilyrði er að módelin líti út fyrir að vera það sem þau eiga að vera.

Ef módelin eru ekki til, eða spilarinn á þau ekki, er annað hvort hægt að umbreyta öðrum módelum (svo ekki fari á milli mála hvað þau eru) eða nota einfaldlega ekki sveitina. Raunvörulegir hershöfðingjar höfðu ekki alltaf það sem þeir vildu helst…

Spilun:
Hver bardagi á ekki að standa lengur en dómarinn segir fyrir um. Ef bardagi er ekki búinn fimm mínutum áður en næsti bardagi á að hefjast getur dómari stöðvað leikinn og beðið menn um að telja.

Bardagar verða hefbundnir bardagar (pitched battle) og nota reglurnar af bls 199-200 í reglubókinni hvað varðar uppröðun hers og aðrar reglur.

Spilað verður á bæði 5’x 4’ og 6’x 4’ borðum. Terrain verður sett upp fyrirfram á hverju borði og ekki er leifilegt að breyta því. Athugið að terrain getur verið mjög mismunandi eftir borðum svo best er að taka herji sem geta höndlað það.

Fyrir hvern bardaga ættu menn að ræða herjina sín á milli, og útskýra sérstakar reglur fyrir herjina, og sveitir í hernum, sé þess óskað.

Eftir hvern bardaga eiga spilarar að skiptast á listum fyrir herjina. Það er gott tækifæri til að athuga hvort herinn er ekki löglegur, og hvort rétt var talið eftir bardagann.

Eftir bardaga þarf að skrá stig sem fengust fyrir spilamennsku á þar til gert blað. Stigin eru veitt eftir því hversu stór sigurinn eða tapið var, notið töfluna á bls 198 í reglubókinni.
·Slátrun (massacre): Sigurvegari fær 20 stig, sá sem tapar 0.
·Stórsigur (solid victory): Sigurvegari fær 17 stig, sá sem tapar 3.
·Sigur (minor victory): Sigurvegari fær 13 stig, sá sem tapar 7.
·Jafntefli (draw): Báðir spilarar fá 10 stig.

Að lokum þarf eftir hvern bardaga að fylla inn blað um hversu skemmtilegur mótspilarinn var, og skila því inn. Það getur gefið frá 0 stigum upp í 3 stig aukalega fyrir hvern bardaga.

Verðlaun:
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætinn, eftir að reiknuð hafa verið inn stig fyrir skemmtilegasta mótspilarann og málun. Einnig verða veitt verðlaun fyrir skemmtilegasta mótspilarann og flottasta herinn.

Stig fyrir málingu
Gefin eru allt að 10 stig fyrir málaða herji á mótinu.

Fullmálaður her fær 8 stig. Miðað er við að lágmarki 3 liti, og að plattarnir séu málaðir og ‘flokkaðir’ í það minnsta.

Þeir herjir sem ekki eru fullmálaðir, en eru samt að einhverjum hluta málaðir geta fengið stig sem hér segir.

Talið er saman hversu margar ‘deployments’ (það er hollin sem þú setur í einu á borðið áður en bardaginn byrjar) herinn hefur í bardaga. Munið að allar vígvélar (en ekki stríðsvagnar) teljast einn hópur og eins með allar hetjur. Svo er tekið hlutfall af máluðum ‘deployment’ hlutum í hernum og gefin stig.

·Ef 0-24% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 0 stig
·Ef 25-49% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 2 stig
·Ef 50-74% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 4 stig
·Ef 75-99% af ‘deploymentum’ í hernum er málað eru gefin 6 stig
·Ef herinn er fullmálaður fær hann 8 stig.

Dæmi: Her sem er með fjórar sveitir af fótgönguliði, tvær riddaraliðssveitir, tvær fallbyssur og tvær hetjur er samtals með 8 sveitir til að setja niður (4+2+1+1). Ef hann er með eina sveit af fótgönguliði og eina riddarasveit málaða telst það 25%, og gefur 2 stig. Ef hann er með tvær fótgönguliðasveitir, eina riddarasveit og allar hetjurnar málaðar er það 50% og þar af leiðandi 4 stig.

Flottasti herinn
Á einhverjum tímapunkti á meðan mótinu stendur verða allir þeir sem eru með fullmálaðan her beðnir um að stilla upp hernum sínum. Spilarar geta þá valið um hvað þeim finnst vera flottasti herinn. Sá her sem fær flest stig fær tvö auka málingarstig, og þeir sem verða í 2-3. sæti fá eitt aukastig.

-*-*-*-*-


Skemmtilegasti mótspilarinn

Nafn spilara: _______________________________
Nafn andstæðings: _______________________________
Bardagi nr:__________

Lesið spurningar 1, 2 og 3, og svarið því hvað ykkur finnst eiga best við með því að gera hring í kringum einn tölustaf.

1. Var bardaginn skemmtilegur?
0: Mér fannst þetta leiðinlegur bardagi og naut hans ekki
2: Meðal skemmtilegur leikur.
4: Frábær bardagi. Væri til í að spila aftur við þennan
gaur í dag!
0 1 2 3 4

2. Hversu skemmtilegur var andstæðingur þinn? Reyndu að meta þetta eftir því hvort hann reyndi að auka ánægju beggja af bardaganum eða hvort hann var alltaf að kalla til dómara og notfæra sér reglusmugur.
0: Andstæðingurinn var ekki mjög skemmtilegur í þessum
bardaga.
2: Meðal skemmtilegur andstæðingur
4: Frábærlega skemmtilegur andstæðingur.
0 1 2 3 4

3. Var her andstæðingsins vel uppsettur að þínu mati, var hann dæmigerður fyrir herji þessa liðs, eða það þema sem hann er gerður eftir?
0: Þetta er ekki vel uppsettur her. Mér fannst ekki gaman
að spila gegn hernum. Herinn virtist gerður
eingöngu til að vinna, án þess að taka tillit til
þess hvernig herjir þessa liðs væru í
raunvöruleiknanum.
2: Meðal góður her.
4: Flott uppsettur her, gaman að spila gegn honum. Það var
gott jafnvægi í hernum og hann fylgdi því þema
sem lagt var upp með.
0 1 2 3 4


-*-*-*-*-

Allavega, þetta eru hugmyndir mínar, endilega kommentið sem mest!

Kveðja

Brjánn Jónasson