Þessi saga er um eitt mesta ósæti milli primarcha sem gerst hefur.

Dark Angels og Space Wolves áttu að drepa saman uppreisnar mann sem var að leggja plánetu undir sig. Fyrir bardagann hafði hann kallað Leman Russ (primarch Space wolves ,,Úlfurinn“) hvolp Keisarans og sagt að hann skyldi búa til hunda mat úr honum. Þá móðgaðist Leman Russ og sagðist persónulega ætla að slíta hjartað úr honum. Lion el Jhonson ( primarch Dark Angels ,,Ljónið”) var búinn að gera svaka áætlun um hvernig ætti að ráðast á virkið hjá uppreisnarmanninum. Leman Russ vildi að Space Wolves yrðu einir í árásinni en Lion sem var búinn að vera í marga daga að plana þetta var ekki ánægður og byrjaði árásina. Lion drap uppreisnar manninn fyrir framan nefið á Russ sem var ekki ánægður og sló hann. Lion sló hann til baka og svo hófst einvígi sem stóð í 2 sólarhringa. Illa gekk hjá þeim að skaða hvorn annann því þeir þekktu hvert bragð hvers annars og þótt Russ væri sýnilega sterkari var Lion sýnilega sneggri. Á endanum byrjaði Russ að hlægja og hætti að berjast og gerði grín að öllu (Russ var fljótur að reiðast og fljótur að gleyma) en Lion var fúll (hann var lengi að reiðast og lengi að fyrirgefa). Alveg síðan hefur verið mikill fjandskapur milli Space Wolves og Dark Angels og einu skiptin sem þeir leggja ágreining sinn til hliðar er þegar þeir þurfa að sameinast gegn óvinum Keisarans.
Endir
RaMpAGe