OK, mér leiðist, og mig langar til að heyra frá ykkur um minnistæðustu Warhammer-augnablikin ykkar (alveg sama hvort það er Fantasy eða 40K)

Ég ætla að byrja á nokkrum sem ég man eftir:

4th ed þýðir fjórðu útgáfu (1992-1996) 5th ed þýðir fimmtu útgáfu (1996-2000) og svoleiðis.

1. (5th ed) Þegar High-álfarnir mínir þurrkuðu út Chaos her í fyrsta shooting phase leiksins (25% drápust í öllum þrem sveitunum og allar flúðu út af…) NB: Við byrjuðum upp á nýtt….

2. (5th ed) Þegar Venerable Lord Kroak (Lizardmen special character sem er steindauður) var í bardaga í 3 TURN á móti:

Emperor Dragon
Dark Elf Lord með Destroyer (sverð sem stal Magic Items)
Vampire Lord frá helvíti með Frost Blade (1 wound kills sverð)
10 manna Ghost sveit
Chaos Hero Of Slaanesh á Steed Of Slaanesh

Kroak lék sér bara að því að murka lífið úr þessu hægt og rólega og stóð síðan einn eftir með 1 wound!

3. (5th ed) Vampire Counts spilari er gott sem búinn að vinna á móti Orc & Goblin her. Það eina sem hrellir hann er að Risi er að þurrka út Zombie sveit nálægt Generalnum hans. Í seinasta turninu chargar Vampíran Risann (Risinn á eftir 4 wound) Vampíran gerir….3 wound! Risinn er ekki snöggur að stappa svo illilega ofan á Vampírunni að ekkert verður eftir! Þar með vinnur Orcaspilarinn.

4. (4th ed) Uppáhaldið mitt. Gunni T er með Skaven og er að spila á móti dvergum. Í þá daga mátti setja charactera lengst inni sveitir, og dvergaspilarinn er með BSB inní miðri Dvergasveit. Þessi BSB var með Master Rune Of Valaya; 150 pts banner sem dispellar alla galdra sem kastað er á 4+. Gunni er með Grey Seer Thanquol. Í FYRSTA magic phasinu (semsagt ennþá cirka 20“ á milli) notar Thanquol Total Power kortið og castar Wither. Wither gerir D6 S5 hits í base contact….og dvergaspilarinn skilur ekki neitt. Þá notar Thanquol Seer Stone (Eykur range á galdri um D6” fyrir hvert power kort sem notað er) og pungar út 7 power kortum og 4 Warpstone Tokens til að láta galdurinn drífa þvert yfir borðið og murkar lífið úr aumingja dvergnum. Thanquol feilar Warpstone checkinu TVISVAR og þurfti að nota sérstakt Re-roll Item til að verða ekki að Chaos Spawn! Aldrei nokkurn tíma hefur nokkuð þessu líkt gerst síðan (og þetta var árið 1995!)

Ef þið hafið eitthvað svipað til að segja frá, endilega gerið það!