Einn athyglisverðasti búnaðurinn í Nissan Sunny GTi-R Jap. Spec var án efa regnhlíf sem mátti draga út úr sérstöku hólfi í hurðinni farþegamegin. Regnhlífin var ekki í UK Spec útgáfunni hvernig sem stóð nú á því.
Þetta er bíll Tommy Makinen eftir rosalegan árekstur við vegrið í dag á Korsíku. Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum sem valt á toppinn og rann áfram eftir veginum og stöðvaðist að lokum á snarbrattri klettabrún. Makinen komst út úr bílnum við illan leik meiddur í baki en aðstoðarökumaður hans sat fastur. Bíllinn stóð svo tæpt á klettabrúninni að menn lögðu ekki í að losa hann úr bílnum fyrr en búið var að binda bílinn fastan við annan bíl ofar á veginum og glittir í kaðalinn vinstra megin á myndinni. Eins og sést á myndinn er framendi bílsins að mestu leyti horfinn en Tommy og aðstoðarökumaður hans reyndust ómeiddir ef undan er skilin tognun í baki.
Nýr afturendi er ein af breytingunum sem voru gerðar á síðustu hundrað TVR Griffith bílunum sem smíðaðir verða. Það er sorglegt að sjá einn magnaðasta sportbíl síðasta áratugar hætta í framleiðslu þrátt fyrir að nýjar gerðir taki við. Meiri upplýsingar og myndir um sögu TVR Griffith: http://www.pistonheads.com/tvr/griffith/
Mazda RX-8 en lokaútgáfa bílsins verður sýnd á Tokyo Motor Show 2001 en hún hefst 27. okt nk. RX-8 er 4 dyra coupe með nýrri Wankel vél sem skilar 250 hö @ 8500 rpm. Á sömu sýning frumsýnir Mazda einnig 4-dyra millistærðar bíl sem nefnist Mazda Atenza en sá verður seldur utan Japans undir nafninu Mazda 6.
Nokkuð áhugaverð síða sem segir frá reynslu eigenda þessa TVR Cerbera (líklegast 4.2, gæti verið 4.5). Áhugaverðast er kostnaður við að eiga þennan bíl og GPS staðfestur hámarkshraði sem þrátt fyrir að vera ótrúlegur gerir ekki meira en að jafna lostið vegna kostnaðarins.