Ford Ka í Martini Racing búningi, alls ekki svo galið.
Það getur verið andskoti flott þegar menn taka sig til og setja aukahluti á bílana þeirra sem gera þá miklu hraðskreiðari eins og t.d. risastór stútur aftan á pústið, taka demparana af bílnum (lækka hann niður) o.s.frv. Hvet alla hondu eigendur að gera þetta við bílinn sinn, enda eru hondur mjög fallegir bílar.
Einn fallegasti smábíll fyrr og síðar, a.m.k. í þriggja dyra formi og enn fallegri í GTi útfærslu. Peugeot 205 GTi 1.9 var enn fallegri en 1.6 vegna glæsilegra 15" álfelgnanna sem pössuðu honum einstaklega. Mig langar ákaflega mikið í svona bíl í góðu standi og með vökvastýri. Og auðvitað verða að vera upprunalegar felgur líka! Minn má samt frekar vera rauður ;)