Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.436 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Audi A8 er væntanlegur á markað og kemur td í sölu í UK í maí á næsta ári. Þetta ku vera fyrsti bíllinn í nýrri kynslóð Audi bifreiða og með honum eru línur næstu kynslóða A2, A3, A4 og A6 lagðar. Bíllinn verður boðinn með tveimur V8 bensínvélum. Sú kraftminni er 3.7 lítra, skilar 280 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 7.3 sekúndum. Sú kraftmeiri er 4.2 lítra, skilar 335 hestöflum og tryggir hröðun upp í 100 km/klst á 6.3 sekúndum. Hámarkshraði er takmarkaður við 250 km/klst í þeim báðum. Ein af nýjungum í Audi A8 er 6 gíra sjálfskipting með Tiptronic handskiptimöguleika en einnig verður hægt að nota handskiptingu sem er í stýrinu en sá búnaður hefur verið þróaður í Audi R8 í Le Mans kappakstrinum. Nýji Audi A8 verður að sjálfsögðu smíðaður úr áli eins og fyrirrennari sinn sem var kynntur árið 1994. Audi A8 verður kynntur opinberlega á The Paris Motor Show í september nk.

Bilar (0 álit)

Bilar Skoda hefur nú birt fyrstu myndir af Wagon útgáfu af Octavia RS en bíllinn fer fljótlega í sölu undir nafninu Skoda Octavia RS Combi. Þetta er í raun nákvæmlega sami bíllinn og sedan útgáfan fyrir að vera Wagon og með litlum spoiler með innbyggðu ljósi aftast á þakinu. Bíllinn er með sömu 180 hö túrbóvél og er gefinn upp í 100 km/klst á 8.0 sekúndum miða við 7.9 hjá sedan útgáfunni. RS lína Skoda kemur svo enn til með að stækka seinna í haust þegar Skoda Fabia RS verður kynntur til sögunnar. Til gamans má svo geta að í Bílablað Moggans þessa helgina er birt reynluaksturgrein um Skoda Octavia RS.

Bilar (0 álit)

Bilar Einn af skemmtilegustu ítölsku bílunum. Með topp sem er hægt er að taka af, vélina fyrir aftan og afturhjóla drifinn. Það komu ca.8-10. og einn rauður sem pabbi átti.

Bilar (0 álit)

Bilar Porsche Boxster, ókrýndur konungur roadsteranna, hefur nú fengið smávegis yfirhalningu bæði útlitslega og undir húddinu. Framstuðaranum hefur verið breytt eilítið og loftristar endurbættar. Afturstuðarinn er stærri en áður og bíllinn er þéttari á að líta. Afturljósin eru ný, og búið er að setja glerglugga í blæjuna. Bæði Boxter og Boxter S eru nú öflugri, 228 og 260 hestöfl. Hóflegar breytingar en góðar.

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi Toyota Supra tt, sem er mjög mikið breytt, var nýlega til sölu á ebay. Skilar ca. 1000 hestöflum að sögn eiganda, og fer kvartmíluna á ~10sek. http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=1841743794

Bilar (0 álit)

Bilar Blaðamaður DV fékk að taka í Honda S2000 um daginn, og það þarf að leita langt til að finna bílablaðamennsku á lægra plani. Menn ættu að skammast sín fyrir svona óvitaskap.

Bilar (0 álit)

Bilar Ef þessi er ekki flottur þá veit ég ekki hvað

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er einn af Jaguar XJ12C bílunum sem Lister breytti í kringum 1990. Þessir bílar eru mismunandi en eitt dæmi er 1976 bíll sem endaði með 501bhp 7 lítra V12, 5 gíra Getrag kassa og hámarkshraða yfir 300km/klst! Ekki beinlínis úlfur í sauðagæru en fleki sem gæti gert mörgum sportbílum skráveifu.

Bilar (0 álit)

Bilar BMW hefur staðfest að M3 CSL muni fara í framleiðslu. Að BMW skuli búa þennan bíl til eru einhverjar bestu fréttir frá þeim bæ í langan tíma. Aðalatriðið er að CSL mun treysta á lægri þyngd til að skila afköstum frekar en meira afl. Með því að nota m.a. koltrefjaefni mun CSL verða 200 kg léttari en venjulegur M3 eða einungis 1295 kg. Myndin ásamt frétt er fengin af Autozine og má finna á http://autozine.kyul.net/0_News/Latest/Current/News_frame.htm en áhugasamir um fyrstu staðfestu tölur og upplýsingar um Enzo Ferrari (Ferrari FX/F60) geta fundið ítarlega grein á sömu slóð.

Bilar (0 álit)

Bilar BMW hefur nú birt myndir af BMW Z4 sem væntanlegur er á markað í Evrópu snemma á næsta ári en seint á þessu ári í USA. Bíllinn verður fáanlegur með 2 vélum, 2500 cm3 sem skilar 192 hö og 3000 cm3 sem skilar 231 hö, en báðar eru þær 6 strokka. Hægt verður að velja á milli 5 gíra handskipts gírkassa eða Steptronic gírkassa á 2500 bílnum en kaupendur 3000 bílsins geta valið á milli 5 gíra Steptronic gírkassa eða glænýs 6 gíra handskipts gírkassa. Um mitt næsta ár verður svo sequential gírkassi (SGG) fánlegur sem aukabúnaður í báðum útgáfum. BMW Z4 verður frumsýndur á Bílasýningunni í París (Paris Motor Show) í september nk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok