Litið ofan í vélarhúsið á bílnum mínum, Sierra RS Cosworth (2.0 DOCH 16v Turbo) og skilar víst 340+hö. Nánar um hann og fleiri myndir á kasmír síðunni minni…
Hér er dæmi um flottan bíl sem er ekki seldur hér! :(
Citroën CX Prestige er alvöru límúsína með 309 cm hjólahaf þótt útlitið minni kannski frekar á geimskip. Það er einmitt partur af sjarmanum og tæknibúnaðurinn er alveg í takt við útlitið, það er engu líkt að keyra svona bíl. Takið eftir íhvolfri afturrúðunni, en loftstraumur sér um að halda henni hreinni svo að rúðuþurrka er óþarfi.