Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.436 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Lítur út eins og Ferrari 355 GTS en er í raun Toyota MR2.

Bilar (0 álit)

Bilar Hummer H2 2003

Bilar (0 álit)

Bilar Mal3 kom mér á bragðið og ég uppgötvaði bíl sem ég var löngu búin að gleyma, Lamborghini Islero S 1969 módel - gullfalelgur bíll með 350 hestafla V12. 2+2 fyrirkomulag og aðeins framleiddir 100 Islero S og 125 Islero. Bíllinn á myndinni er með athyglisverða merkingu á hliðinni ekki ósvipað og Porsche Carrera hafði á sínum tíma.

Bilar (0 álit)

Bilar Ég er ábyggilega ekki sá eini á áhugamálinu sem fíla svona myndir af hreinræktuðum fákum með orustuflugvélum. Skaðar ekki að bíllinn er Lamborghini Espada S3 (enn einu sinni) og flugvélin frá hátindi bulluhreyfla í flugvélum, North American P51D Mustang. Meira um þennan glæsivagn á http://www.lamborghiniregistry.com/Espada/Espada3/9360.html - besta Lamborghini vefsetrinu.

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar CJX Broadspeed - ég átti svona bíl í bílabrautinni minni þegar ég var polli. Ansi vígalegt tæki, 550 hestafla V12. Bílarnir voru með smekklegar brettaútvíkkanir og kæliraufar, létta skel og þróaðri fjöðrun. Þessir bílar slógu mörg met í tímatökum en endust ekki nógu lengi í akstri til að vinna keppni - flottur samt. Hinn bíllinn í bílabrautinni var BMW sexa í Jagermeister litunum, það kemur mynd af honum síðar.

Bilar (0 álit)

Bilar Matra Murena er ákaflega áhugaverður franskur sportbíll. Grindin er galvaniserað og húðað stál en ytri byrði er úr plasti. Vélin er fyrir miðjum bíl, á þessari “S”-gerð frá 1984 2.2l og 142 hestöfl, en það merkilegasta er að bíllinn er þriggja sæta, með þrjá stóla frammí! Þessir bílar er heldur fágætir og verð í samræmi við það þótt hann sé varla dýr, enda sérstakur bíll.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona á að hafa það gott á skrifstofunni, Recaro skrifborðsstólar! Ef það er nógu gott í bílinn…

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er það sem gerist þegar enskumælandi maður er ekki látinn fara yfir þýðingar. Á myndinnni er sem sagt gólfmotta í Nissan í upprunalegum varahlutapakkningum. Ef einhver hefur hugmynd um hvað er verið að reyna að segja með þessu, tjáið ykkur endilega á korkinum!

Bilar (0 álit)

Bilar 2004 útgáfan af Lamborghini Gallardo

Bilar (0 álit)

Bilar Einmitt þegar þið hélduð að Jennifer Lopez brandarar væru komnir úr tísku kemur þessi bíll frá Porsche. Upprunalega ætluðu þeir að kalla hann Porsche 911 Turbo J-Lo, en eftir að Ben Affleck sagði þeim að hún væri alger tík með her lögfræðinga ákváðu þeir að kalla hann bara 911 Turbo Cabrio.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok