Þarna vildi ég vera… Ricardo Zonta býður heppnum farþega far í Caterham Blackbird á Estoril brautinni. Blacbird er með 1100cc Honda mótorhjóla vél og sex-gíra “sequential” mótorhjóla gírkassa. Hámarkssnúningur er 12.000 rpm! 0-60 mph á 3,7 sek.
Porsche fór sigurgöngu um heiminn með þessum bíl 1973. Fjöldi kappaksturssigra en sá sætasti hefur verið þegar Herbert Müller og Gijs van Lennep unnu síðasta Targa Florio kappaksturinn á Sikiley. Heimamenn bundu miklar vonir við öflugri bíla Ferrari og Alfa Romeo en þeir féllu úr keppni og Porsche 911 RSR vann enn einn sigurinn.