Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.437 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Hjálpið mér að ná sambandi við alla sem eiga mini á Íslandi. Verðum að fá smá sona á Laugaveginn einhverntíman!

Bilar (0 álit)

Bilar Svona á maður að hafa bílinn sinn að innan allt grænt og keðjustýri Gangstastyle! svo bara kjötsaxið hennar mömmu og líkpoki í skottinu.

Bilar (0 álit)

Bilar Einn öflugasti VW Golf í heimi, sérsmíðaður af Hans Dahlbäck og er grindin af fjórðu kynslóð Golf en vélin er mikið breytt Audi Quattro Turbo 5 cyl vél. Vélin er um 900 hö og snýst upp í 10.000 snúninga.

Bilar (0 álit)

Bilar Orðrómur er um að væntanleg sé léttvigtar útgáfa af BMW M3. Bíllinn mun heita M3 ClubSport, og verður um 150kg léttari en hefðbundinn M3. Til þess að létta bílinn verður rafstilltu lúxussætunum skipt út fyrir kappakstursstóla úr trefjaplasti, og rafrúðurnar fá einnig að víkja ásamt öllum óþörfum tæknibúnaði. Vélin í ClubSport verður aðeins öflugri en í standard M3, eða 350 hestöfl. Ef orðrómurinn reynist réttur, þá mun bíllinn koma á markað síðar á þessu ári. Góðar fréttir fyrir harðkjarna akstursáhugamenn!

Bilar (0 álit)

Bilar Ford Mondeo rallýbíll útbúinn af Prodrive

Bilar (0 álit)

Bilar Svona er útsýnið út úr rallíbíl á fullri ferð en hér sjáum við út
um framrúðuna hjá Richard Burns í spænska rallinu sem fór fram
í Catalunya 22-25 mars sl.

Bilar (0 álit)

Bilar Svipmyndir frá Akinn rúntinum í gær. Nýlegur Malibu(held ég) spólaði sem óður væri, og bíllinn var orðinn ansi slappur eftir allt aksjonið. Svo var einn sem misskildi aðeins og fór að spóla á Toyota jeppanum sínum.. :) Lögreglan kom aðeins inná planið, en menn hættu ekkert að spóla þrátt fyrir það.(nutters!) A.T.H. Vegna þess að myndirnar hérna mega ekki vera nema 32k, þá eru gæðin ekkert til að hrópa húrra fyrir..

Bilar (0 álit)

Bilar TVR Tamora, myndir af pistonheads.com, af, það sem ég held að sé endanlegt útlit.

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Renault Clio er væntanlegur í sumar, og innan línunnar er að finna endurbættan Clio 172, sem íslendingar fá vonandi að kynnast sem allra fyrst. Helstu breytingar í nýjum 172 eru nýtt útlit, 16“ felgur í stað gömlu 15”, togmeiri vél sem er enn 172 hestöfl, stífari fjöðrun og endurbætt grind, og meiri lúxus í innréttingu. Ég var aldrei neitt sérstaklega hrifinn af gamla útlitinu, og finnst það nýja skref uppávið. Hann er ekki eins mjúkur og sá gamli, og 16“ felgurnar fara betur en gömlu 15”. Nú er bara að þrýsta á B&L um að flytja þetta tryllitæki til landsins!

Bilar (0 álit)

Bilar Þriggja dyra útfærslan af 205 er að mínu mati einn fallegast smábíll fyrr og síðar. Enn ein klassísk hönnun frá Pininfarina.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok