Rakst á þennan á pistonheads.com og fannst útlitið lofa góðu. Falleg hönnun en á blaði virðist heimasmíðaður bíll með 2.7l Honda V6 upp á 174 hestöfl sem er gefinn upp á “under 7 secs. 0-60mph” ekkert sérstaklega áhugaverður…
Ég veit því miður of lítið um þennan bíl en þetta er Volvo Safety Car Concept. Það sem að ég veit þó um hann er að útlitið fær hæstu einkun og ég mun fylgjast vel með verkum peter Horbury hönnuðar hans.
Varð að setja inn betri mynd en bebecar sendi af Europa. Ég get ekki alveg sagt að hann sé ljótur en þetta er ákaflega einkennilegur bíll í útliti. Hann er hinsvegar mjög lítill og mér þætti gaman að sjá hann í alvörunni.
This is hard core: 600bhp og 600lb/ft úr twin-supercharged V8 kemur þessu tveggja tonna flykki í 100 á ca. 4 sekúndum. Allt statistík er brútal, útlitið er brútal. Ef þú þarft að spyrja um verð hefurðu ekki efni á þessu ;)
Eins og einhver orðaði það: “The fastest gentleman's club in the world.”
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..