Ég bið bebecar velvirðingar en ég gat ekki staðist mátið. Fann þessa mynd af StreetKa þar sem afturendinn sést betur og hann er frábær. (Þið búist við þessu…) Alls ekkert slor á Kylie heldur ;)
Svona á að auglýsa bíla! Draumatvennan Kylie Minogue og Ford Street Ka. Ég veit ekki með ykkur en sem hard core bíladellukalli langar mig meira í helminginn sem kemur frá Ástralíu. Ekki að Street Ka lofi ekki góðu en það þyrfti vænan vagn til að laða mig frá Kylie ;) [Mynd af mbl.is]
Faðir minn átti Wartburg (ekki ósvipaðan þessum bara með palli) fyrir mörgum árum síðan. Þessir bílar voru hrein snilld, 3 cyl, 1 lítra tvígengisvél sem skilaði um 50 hö. Það var ekkert nema snilld innsogið á þeim:)
Subaru Impreza tekur nú um helgina þátt í sinni eitt hundruðustu WRC keppni. Af þeim 99 keppnum sem bíllinn hefur áður tekið þátt í hefur hann sigrað 33 sem telst vera ágætis árangur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..