Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.437 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar …og svo kallaði einhver Honda CRV jeppling? Þarna mætir mjög heppinn maður á einstaklega fallegum 1970 módel Lotus Elan S4 nútíma jepplingi á breiðum amerískum vegi. Stundum held ég að framfarir í bílaiðnaði hafi verið engar frá því ég fæddist…

Sjáið fleiri myndir af þessum glæsilega bíl á http://www.californiaclassix.com/archive/70_Lotus_Elan_c128.html

Bilar (0 álit)

Bilar Ég rakst á þessa mynd á netinu sem sýnir hvernig BMW hannaði vindskeið á BMW Z1 einn án þess að nota væng á skottlokið. Humgyndin er stórsnjöll… Hljóðkúturinn virkar sem vængur með neikvæðri lyftingu eins og sést á myndinni. Bláu fletirnir eru bíllinn, stuðararnir, driflæsingin og svo hljóðkúturinn!

Bilar (0 álit)

Bilar Fáar lúxuskerrur hafa státað af sama glæsileika og hinn franski Facel-Vega Excellence frá 1956-61. Hönnunin minnir óneitanlega á ameríska bíla frá sama tíma, en er einhvern veginn fágaðri og glæsilegri. Vélin er hins vegar al-amerísk - Chrysler V8 með haug af hestum til að skila þessum þunga bíl áfram. Meðal eigenda Excellence voru stjörnur á borð við Ava Gardner og kappakstursmeistarann Sir Stirling Moss.

Myndin og meira lesefni á:
http://www.classicdriver.de/uk/magazine/3100.asp?id=10841&section=1

Bilar (0 álit)

Bilar Þá eru komnar opinberar myndir af því hvernig framleiðsluútgáfa McLaren Mercedes SLR muni líta út og ég hef bara tvö orð: phallic symbol.

Ef einhver bíll slær út Jaguar E-Type (ekki í fegurð heldur í getnaðarlimsskýrskotun) þá er það SLR. Kíkið á http://www.pistonheads.com/doc.asp?c=102&i=7001 til að sjá fleiri (ansi flottar) myndir af SLR.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona bíl átti ég í bílabrautinni minni sem ég fékk þegar ég var 6 ára gamall… Enn í dag finnst mér kappakstursbílar í þessum stíl lang flottastir. Það fylgdi líka BMW E21 Jagermeister með brautinni og er ég að leita að mynd af honum líka. Það vill svo til að ég á E21 í dag, kannski maður eigi eftir að eiga Jagúar líka :)

Bilar (0 álit)

Bilar Mig hefur lengi langað til að koma mér upp safni af art deco veggspjöldum með kappakstursauglýsingum. Fullkomnar veggskreytingar fyrir bíladellumann og þar sem ég er nýfluttur er mál til komið að stökkva til…

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er eins bíll og sá sem markaði endalokin í Grúppu B með hræðilegu slysi Toivonen. Þessi bíll var reyndar smíðaður fyrir hann. Bíllinn er 650 hestöfl, hefur aldrei verið notaður og kostar um 20 milljónir, svo bætast við tollar og gjöld til að fá hann hingað heim.

Bilar (0 álit)

Bilar Aston Martin að etja kappi við óþekktan bíl…. gaman að sjá menn þora að nota bílana sína eins og til var ætlast.

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er lang vígalegasti ASTON MARTIN sem ég hef nokkurn tímann séð. Hann keppti á “vintage” keppni í UK.

Bilar (0 álit)

Bilar Ef það hefur farið framhjá einhverjum bauð Brimborg stjórnendum áhugamálsins að fá til reynslu Volvo S60 2.0t á dögunum. Afrakstur þess má finna í fjórum umsögnum um bílinn á kubbi hér fyrir neðan og Volvo S60 skjábakgrunn á veggfóðurskubbnum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok