Mal spurði um V5 vélina frá Volkswagen. Hér er amk. mynd af henni (coverið amk.). Er málið bara ekki það að þessi vél er orðin 5-6 ára gömul og þykir ekkert sérstök lengur?
Ég er mjög upptekinn núna að velta fyrir mér þessum snilldar VR “narrow-angle” V-vélum VW. Get ekki sagt annað en ég hrífist af þessum hugmyndum. Á myndinni er vélarblokk W12 vélar, nokkuð sem fékk kjálkann á mér til að nálgast bringuna aðeins. Nú á ég bara eftir að fá að vita meira um V5 vélina stórmerkilegu sem enginn virðist vilja segja neitt um á vefnum. Einhverjir snillingar hér sem luma á vísdómi um hana? Sendið mér skilaboð, eða betra, sendið inn pistil!
I see you baby, shaking that… twin tailpipe!
Rakst á þessa frábæru mynd af Lotus Elite á http://www.classicdriver.com/uk/magazine/3400.asp?id=10541 - en þar er einnig prýðispistill um þessa framúrstefnubíla. Straumlínulögun á við það besta í dag árið 1958 og burðarvirkið úr trefjaplasti!