Ótvíræður sigurvegari í seinustu könnun, Subaru Impreza WRX. Í 2. sæti var Focus RS, CTR og Cooper S deildu með sér 3. og 4. sæti og Clioinn rak lestina.
Colin McRae hér á fullri ferð í upphitun fyrir breska rallið sem hefst um kl. 19:10 á morgun, fimmtudag. McRae sigraði hér árið 1994,1995 og 1997 en hann tryggði sér sinn fyrsta og eina heimsmeistartitil árið 1995 í þessu ralli með flottum og öruggum akstri. Sjálfur hefur hann sagt að ef hann ætli sér að standa uppi sem sigurvegari á sunnudagskvöld verði hann að aka enn betur er árið 1995. Eins og sést á myndinni er talsvert neistflug undir bílnum enda verður hver einasta beygja skorin eins tæpt og hægt er með tilheyrandi álagi á undirvagn og dekk. Eins má sjá að aldrei þessu vant þá rigndi áBretlandi í dag sem þýðir að vegirnir verða mjög sleipir og erfiðir viðureignar.
TVR er að kynna hugmyndabíl sem er í raun coupe útgáfa af hinum öfluga Tamora. Nafnið sem er notað, a.m.k. í augnablikinu, er T-350R, en TVR virðist hafa tvo hugmyndabíla sem eru nokkuð frábrugðnir. Sá græni sem er á myndinni hér er sá sem mér fellur betur en ef þið pírið augun sést hinn, hvítur, í bakgrunni. Fleiri myndir og upplýsingar á Pistonheads.com - http://www.pistonheads.com/tvr/default.asp?storyId=5689