Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.436 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Ný Nissan Primera er á leiðinni. Nú má fá að líta nýja útlit Nissan en það er að minsta kosti hægt að segja að útlit Primera sé áhugavert ólíkt því sem áður hefur verið. Það verður gaman að sjá hvort hér er kominn bíll sem hefur burði til að takast á við það besta í geiranum.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er bíll Tommy Makinen eftir rosalegan árekstur við vegrið í dag á Korsíku. Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum sem valt á toppinn og rann áfram eftir veginum og stöðvaðist að lokum á snarbrattri klettabrún. Makinen komst út úr bílnum við illan leik meiddur í baki en aðstoðarökumaður hans sat fastur. Bíllinn stóð svo tæpt á klettabrúninni að menn lögðu ekki í að losa hann úr bílnum fyrr en búið var að binda bílinn fastan við annan bíl ofar á veginum og glittir í kaðalinn vinstra megin á myndinni. Eins og sést á myndinn er framendi bílsins að mestu leyti horfinn en Tommy og aðstoðarökumaður hans reyndust ómeiddir ef undan er skilin tognun í baki.

Bilar (0 álit)

Bilar Bara til gamans, pikkaði þessa mynd af hinni stórkostlegu heimasíðu streetkiaz.com sem er áhángenda síða KIA eigenda!
Þeir stúta bílum í spyrnu, Ferrari, Porsche og þannig bílum;)

Bilar (0 álit)

Bilar Bara að fá eitthvað skemmtilegt í staðinn fyrir þessa “eltingaleiks” mynd! :)

VW Golf MkI GTi, fyrsti GTi bíllinn og stendur ennþá fyrir sínu.

Bilar (0 álit)

Bilar Menn eru greinilega eitthvað farnir að minnka innsendingar á myndum og á meðan verðum við bara að sætta okkur við framhald á Impreza seríunni :)

Bilar (0 álit)

Bilar Veit nú ekki hvað þessi bíll heitir nákvæmlega en þetta er Lexusinn úr “Minority report”

Bilar (0 álit)

Bilar Porsche Boxster, ókrýndur konungur roadsteranna, hefur nú fengið smávegis yfirhalningu bæði útlitslega og undir húddinu. Framstuðaranum hefur verið breytt eilítið og loftristar endurbættar. Afturstuðarinn er stærri en áður og bíllinn er þéttari á að líta. Afturljósin eru ný, og búið er að setja glerglugga í blæjuna. Bæði Boxter og Boxter S eru nú öflugri, 228 og 260 hestöfl. Hóflegar breytingar en góðar.

Bilar (0 álit)

Bilar BMW 528ia ´87

Bilar (0 álit)

Bilar Jább… þetta er LADA.. Lada 110 Coupè

Bilar (0 álit)

Bilar Þar sem engir voru að senda inn myndir ákvað ég að henda inn syrpu af myndum af Mazda RX-8.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok