Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.436 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Nýjasta umferðarmerkið kemur í mismunandi litum en táknar alltaf það sama: fjármálastofnun innan 50m…

Bilar (0 álit)

Bilar Eina myndin sem hefur verið birt af Ferrari FX eins og hann er í dag kallaður. Líklega mun nafnið breytast í F60 eins og við afmælismódel á en því miður heldur FX áfram hefðinni að hvert afmælismódelið verði ljótara en það á undan…

Bilar (0 álit)

Bilar Ég fæ nú hálfgert samviskubit af því að bola Kylie út, en þessi bimmi er bara svo ægilega vígalegur.

Bilar (0 álit)

Bilar Nýjustu Lödurnar á markaðinum http://www.autolada.hg.pl/future.htm og http://www.carenthusiast.com/shows/mo99_pic.htm

Bilar (0 álit)

Bilar Skoda Auto kynnir nýjan coupe Skoda á Bílasýningunni í Genf sem hefst nk. fimmtudag. Nýji bíllinn heitir Skoda Tudor og er byggður á Skoda Superb en sá bíll er byggður á undirvagni VW Passat. Aðeins ein vél hefur verið í nefnd í sambandi við bílinn og er hún 2.8 lítra V6 bensínvél sem á að skila 193 hö

Bilar (0 álit)

Bilar Lotus hefur tilkynnt að stefnt sé að setja Elise á markað í Bandaríkjunum. Ég tel augljóst að nokkrar breytingar þurfi að vera gerðar á bílnum en Lotus hefur tilkynnt að bílar fyrir ameríkumarkað fái mýkri fjöðrun en þeir sem eru seldir í Evrópu. Líklegt þykir að notuð verði önnur vél en Rover K sem hefur verið í öllum Elise framleiddum hingað til. Vélin á að vera um 120hö og verður áreiðanlega notast við mótor sem þegar er á markaðinum vestra. Verðið á að verða $38.500 og mun sölu á Esprit, sem er eini bíll Lotus núna á Ameríkumarkaði, verða hætt.

Ég verð að segja að ég hef sjaldan séð betri þrennu en þá sem er á myndinni en hún er tekin af www.pistonheads.com þar sem fréttina er einnig að finna.

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar XJ220 tekur smá stökk

Bilar (0 álit)

Bilar Einn fallegasti smábíll fyrr og síðar, a.m.k. í þriggja dyra formi og enn fallegri í GTi útfærslu. Peugeot 205 GTi 1.9 var enn fallegri en 1.6 vegna glæsilegra 15" álfelgnanna sem pössuðu honum einstaklega. Mig langar ákaflega mikið í svona bíl í góðu standi og með vökvastýri. Og auðvitað verða að vera upprunalegar felgur líka! Minn má samt frekar vera rauður ;)

Bilar (0 álit)

Bilar Rakst á þessa mynd þegar ég var að leita að upplýsingum um bíla knúna túrbínum. Á myndinni er verið að aka GM Firebird túrbínuknúnum tilrauna bíl um götur Detroit.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er hin nýja Mazda 6 sem mun koma í staðinn fyrir Mazda 626. Mazda er í óða önn við að gera ímynd sína meira spennandi og óneitanlega lítur þessi bíll út fyrir að vera meira spennandi en 626.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok