Þetta er nýji porche 911 carrera gt2 kemur á evrópumarkað núna 2001
Fyrsti bíll Lamborghini, 350GT kom fram 1964. 350GT var settur til höfuðs Ferrari og var að mörgu leiti fremri. 5 gírar á móti 4 hjá Ferrari, nútímalegri fjöðrun ásamt diskabremsum. Allt í allt fágaðri, hljóðlátari, auðveldari og vandaðri bíll en t.d. Ferrari 275. Ágætis aksturstól og Grand Tourer. Ekki hefur 3.5l DOHC V12 heldur skemmt neitt fyrir!
Porsche fór sigurgöngu um heiminn með þessum bíl 1973. Fjöldi kappaksturssigra en sá sætasti hefur verið þegar Herbert Müller og Gijs van Lennep unnu síðasta Targa Florio kappaksturinn á Sikiley. Heimamenn bundu miklar vonir við öflugri bíla Ferrari og Alfa Romeo en þeir féllu úr keppni og Porsche 911 RSR vann enn einn sigurinn.
McLaren F1 LM sá besti (eins og er) 680 hö, 360kmh hámarkshraði(225 mph), 3.9 sek 0-100, 6.7 sek 0-160, 11.5 sek 0-160-0 (sem er heimsmet framleiðslu bíla!). 5 eintök voru framleidd, allir gefnir, já gefnir. Hann var smíðaður í tilefni sigurs McLaren í Le Mans árið 1995. Verð hefur verið giskað í kringum 80 millur ef þeir væru til sölu. Hefði ekkert á móti því að fá einn svona í jólapakkanum……