Settu 539 hesta 6,3l Chevy V8 í 925 kílóa bíl og það eru ekki margir bílar sem komast hraðar. Ef þú vilt vera viss um að hafa við Ultima Can-Am er best að versla sér McLaren F1 sem kostar bara tífalt meira eða svo.
Mjög töff Saxo VTS. En felgurnar eru of stórar, og draga örugglega úr aksturseiginleikum bílsins. 1.6 vélin er ekki að torka nóg fyrir þessi felgu-ferlíki.. Bílar í þessum stærðarflokki eiga ekkert að vera á felgum sem eru stærri en 15-16", yfir það og aksturseiginlekarnir fjúka
þetta er sko alvöru græja trabant, veit ekki hvort þetta er með 1,1 wolksvagen polo vélinni eða alvöru 601 en hann er allaveganna með körfustóla og millistykki fyrir almennilegar felgu
Hvað er betra en gamli góði bíllinn sem að maður átti þegar að maður var að byrja “keyringaferilinn”. Þeir voru kannski ekki allir flottir, með mörg hundruðþúsundkróna græjur eða hraðskreyðir.
En þeir komu manni á milli staða(svona oftast) og það er það sem máli skiptir, er það ekki?
Gleymdu Veilside, já gleymdu ÁG og gleymdu Tómó! Farðu á trésmíðaverkstæði og vertu SVALUR! Stal þessari mynd af blogginu hennar Esther hugara (http://estherp.blogspot.com) og hún hefur væntanlega stolið henni annarsstaðar frá, en þetta er Nissan Sentra '83 með tré spoiler og skirt kitti!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..