Þetta er nýji Polo frá VW. Ætti þá að vera 2002 módel. Hann er ekki enn kominn til landsins en hlýtur að verða frumsýndur áður en árið er úti.
Nýr og endurbættur Toyota Avensis er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Bíllinn hefur verið tekinn í gegn bæði að innan og utan og á hönnun hans að falla sérstaklega að kröfum evrópumarkaðar þar sem Toyota hefur mikinn áhuga á að auka hlut sinn. Enda er bíllinn hannaður af ED2 hönnunardeild Toyota í Nice en Toyota gerir ráð fyrir að helstu keppinautar í Evrópu verði Opel Vectra, Ford Mondeo og Volkswagen Passat.