Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Ég veit því miður of lítið um þennan bíl en þetta er Volvo Safety Car Concept. Það sem að ég veit þó um hann er að útlitið fær hæstu einkun og ég mun fylgjast vel með verkum peter Horbury hönnuðar hans.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona getur farið með þessa yndislegu bíla…

Bilar (0 álit)

Bilar Ford Focus bíll McRae eftir útafaksturinn í morgun. McRae tók fulla ábyrgð á þessu óhappi en hann sagðist hafa verið á fullri ferði í 5. gír og farið inn í hægri beygju þegar bíllinn lendir ofan í holu í vegkantinum sem olli því að Fordinn tókst á loft og fór amk 4 veltur í loftinu áður en hann kom aftur niður á jörðina. McRae og Grist sluppu lítið meiddir eftir flugferðina.

Bilar (0 álit)

Bilar Mitsubishi Lancer Evolution VII

Bilar (0 álit)

Bilar Bara að fá eitthvað skemmtilegt í staðinn fyrir þessa “eltingaleiks” mynd! :)

VW Golf MkI GTi, fyrsti GTi bíllinn og stendur ennþá fyrir sínu.

Bilar (0 álit)

Bilar Bara til gamans, pikkaði þessa mynd af hinni stórkostlegu heimasíðu streetkiaz.com sem er áhángenda síða KIA eigenda!
Þeir stúta bílum í spyrnu, Ferrari, Porsche og þannig bílum;)

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er bíll Tommy Makinen eftir rosalegan árekstur við vegrið í dag á Korsíku. Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum sem valt á toppinn og rann áfram eftir veginum og stöðvaðist að lokum á snarbrattri klettabrún. Makinen komst út úr bílnum við illan leik meiddur í baki en aðstoðarökumaður hans sat fastur. Bíllinn stóð svo tæpt á klettabrúninni að menn lögðu ekki í að losa hann úr bílnum fyrr en búið var að binda bílinn fastan við annan bíl ofar á veginum og glittir í kaðalinn vinstra megin á myndinni. Eins og sést á myndinn er framendi bílsins að mestu leyti horfinn en Tommy og aðstoðarökumaður hans reyndust ómeiddir ef undan er skilin tognun í baki.

Bilar (0 álit)

Bilar Ný Nissan Primera er á leiðinni. Nú má fá að líta nýja útlit Nissan en það er að minsta kosti hægt að segja að útlit Primera sé áhugavert ólíkt því sem áður hefur verið. Það verður gaman að sjá hvort hér er kominn bíll sem hefur burði til að takast á við það besta í geiranum.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er nýji Polo frá VW. Ætti þá að vera 2002 módel. Hann er ekki enn kominn til landsins en hlýtur að verða frumsýndur áður en árið er úti.

Bilar (0 álit)

Bilar Petter Solberg hér á ferð í Rally New Zealand sem hófst í gærkvöldi. Vegna tímamismunar eru sérleiðirnar keyrðar að nóttu til að íslenskum tíma og því ættu úrslit að vera ljós á sunnudagsmorgun.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok