Jæja.. Hérna er nú ágætis bíll… :)
Einn af fáum Ferrari götubílum með túrbínu. Reyndar voru tvær þannig á V8 vélinni þannig að 400hö þeyttu bílnum sem var undir 1200kg ágætlega áfram. Það hafa varla margir haldið í við þennan 1984…
Hér eru betri myndir af Westfield XTR2 bílnum sem ég skrifaði grein um fyrir nokkru. Hann á að vera um 400 kíló og 200 hestöfl og henta almúganum sem “track car” en hann verður þó löglegur götubíll og með sætum fyrir tvo…..
Hér er coupe/fastback útgáfa Mustang GT Concept 2005. Mun skemmtilegri hönnun en blæjubíllinn þrátt fyrir að maður sjái hvaðan hugmyndirnar koma. Gegnsætt þakið er eitthvað sem má vona að komist í framleiðslu, en afturljósin þyrftu að vera betur í takt við restina af bílnum. Mynd fengin af http://www.mustangworld.com/
Það er eins gott að vara sig á þessum skutbíl því hér leynist úlfur í sauðagæru. Í þennan BMW 540 er búið að setja supercharger og intercooler auk þess að setja M5 svuntu svo aflið er 437hö og togið 622Nm. Þetta skilar kvikindinu í 100kmh á 4.4sec og fyrir þá sem eiga beinskipta 540 og 12995$ aukalega þá er bara að slá til.