Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Impreza WRX STi Type UK er nú loksins farin að sjást á vegunum í UK. Sagan segir að það sé kominn ca 4 mánaða biðlisti eftir bílunum í dag en á myndinn má sjá Prodrive Style útgáfuna.

Bilar (0 álit)

Bilar Lokaandlitslyfting á Honda NSX áður en nýr bíll kemur árið 2003 er ekki stórtæk en þrátt fyrir það illa misheppnuð. Framendinn minnir á MMC 3000GT þótt að ljósin minni óneitanlega á Fiat Coupe sem er með ólíkt bogadregnari línur. Mark Wan á Autozine (þaðan sem myndin er tekin) minntist á vel heppnaða framljósabreytingu á Lamborghini Diablo en sá bíll fékk ljósin af Nissan 300ZX pog merkilegt nokk litu þau mun betur út á Lambo, einföld og féllu vel við útlit bílsins. Einfalt er oftast það besta.

Bilar (0 álit)

Bilar Afsakið mig en þetta finnst mér úrkynjun. Þetta er samt enginn wannabe heldur með 225hp V6, 4WD og ca. 6,5 í 100. Dömur og herrar, sætasti Impreza keppinauturinn, VW New Beetle RSi. Er ég eini maðurinn sem finnst Beetle og RSi ekki eiga heima í sömu setningu?

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta fann ég á Autozine (sjá tenglasafn): Honda Integra Type-R. Nýja Integran mun koma í sölu á Japansmarkaði í júlí. Type-R fær 6 gíra, 2,0l V-Tec með ca. 220hö og önnur atriði sem hittu í mark í eldri bílnum ættu að vera til staðar. Spennandi að sjá hvernig útkoman verður.

Bilar (0 álit)

Bilar 1994 var 25 ára afmæli Trans Am og komu þeir svona hvítir og með hvítum leðursætum.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er skoda bifreið sem að ég er ekki viss hvað heitir en það verður gaman að sjá svona bíl á götunum hérna!!

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er dæmi um flottan bíl sem er ekki seldur hér! :(

og mar getur fundið helling á : http://www.stoneage.com/pricing/pricing_model.cfm?year=2003&make=44

Bilar (0 álit)

Bilar Gleymdu Veilside, já gleymdu ÁG og gleymdu Tómó! Farðu á trésmíðaverkstæði og vertu SVALUR!
Stal þessari mynd af blogginu hennar Esther hugara (http://estherp.blogspot.com) og hún hefur væntanlega stolið henni annarsstaðar frá, en þetta er Nissan Sentra '83 með tré spoiler og skirt kitti!

Bilar (0 álit)

Bilar Það er mín hógværa skoðun á skjön við flesta sem titla sig fræðimenn á þessu sviði að hvorki Ferrari 250 og 275 hafi verið fallegir bílar en 330 GTC markar að mínu mati upphaf að því að Ferrari fari að vera augnayndi. Ég veit ekki hvort hann er Pininfarina hannaður eins og flestir frægustu Ferrari bílarnir en þessi bíll frá 1966 hefur til að bera fínleika í línum sem var að mínu mati áður óþekktur hjá Ferrari.

Bilar (1 álit)

Bilar Að vera með Neon ljós í bílnum getur verið ógeðslega töff!
Enn er þetta ekki einum of?
ÞETTA ER EKKI TÖFF!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok