Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.435 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Ég er með krosslagða fingur að þetta tæki komist í framleiðslu. Þó ég fíli almennt ekki
retro bíla er þessi endurvakning á hinni fornfrægu Lancia Fulvia svo vel heppnuð að
mig langar í einn svona. Strax! Innréttingarnar eru flottari en ytra byrði. Það sem er
undir fallegu skinninu er ekkert nýtt dót, heldur fengið að láni úr Fiat Barchetta. Sem
lofar bæði góðum eiginleikum og því að létt verði að gera Fulvia tilbúna fyrir
framleiðslu. Ef verðið verður skikkanlegt verður mega nýju junior-BMWarnir vara sig.
A.m.k. þeir með minni vélarnar.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona á að hafa það gott á skrifstofunni, Recaro skrifborðsstólar! Ef það er nógu gott í bílinn…

Bilar (0 álit)

Bilar Þessa ákaflega flottu mynd af Lamborghini Espada S1 fann ég á www.lamborghiniregistry.com sem er ábyggilega einn besti Lamborghini vefurinn á netinu. Það má segja að bíllinn sé þarna í sinu rétta umhverfi - á herragarði - enda stundum kallaður Rolls Royce að hætti Lamborghini. Þrátt fyrir að vera 2 dyra sportbíll með V12 vél hafði Espada alvöru aftursæti og farangursrými, ábyggilega tilvalinn bíll til að skjótast á milli Evrópulanda á.

Bilar (0 álit)

Bilar Benz í góðum gír á Mosfellsheiði :)

Bilar (0 álit)

Bilar Matra-Simca Bagheera er rennilegur bíll. Minnir nokkuð á Lamborghini Urraco. Matra framleiðir ýmislegt og þótt þeir selji ekki bíla, eftir minni bestu vitneskju, undir eigin nafni í dag, sjá þeir t.d. um smíði á Renault Espace, eða gerðu a.m.k. Greinilega ekki mikið upp úr bílabransanum að hafa í seinni tíð og jafnvel meira að gera í vopnabransanum, jafnvel eftir lok kalda stríðsins, en það er ekki ólíklegt að einhverjar sprengjur frá Matra leynist í flugskýlum í Írak.

Bilar (0 álit)

Bilar Litli subaruinn minn í góðum gír. 2,1HP og 1,4 kg. Virkar nokkuð vel.

Bilar (0 álit)

Bilar Sendi hér inn aðra mynd af mínum Trans AM, en hann er í allsherjar klössun þessa dagana.

Bilar (0 álit)

Bilar Myndin er af fyrstu kynslóð af Chevrolet Camaro.

Bilar (0 álit)

Bilar Bíllinn loksins tilbúinn!! Eftir mikla bið eftir honum úr sprautun. En hann er algjört bjútí:D

Bilar (0 álit)

Bilar Jæja þá er sprautun á mínum Trans AM komin langt áleiðis. Blái liturinn er kominn á en það á eftir að sprauta þann gráa. Bíllinn er partasprautaður þannig að hann er hálf fátæklegur að sjá á myndinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok