Einmitt þegar þið hélduð að Jennifer Lopez brandarar væru komnir úr tísku kemur þessi bíll frá Porsche. Upprunalega ætluðu þeir að kalla hann Porsche 911 Turbo J-Lo, en eftir að Ben Affleck sagði þeim að hún væri alger tík með her lögfræðinga ákváðu þeir að kalla hann bara 911 Turbo Cabrio.
Þá hefur BMW svipt hulunni af nýja ásnum sínum. Ekki jafn slæmt og ég bjóst við af síðustu njósnamyndum sem ég sá, en mittislínan virðist samt full há. Enginn horror, en mig hlakkar samt til að sjá 3ja dyra útgáfu ásamt tvistinum, sem kemur vonandi fljótlega.
Ég get ekki horft lengur á myndina af skemmdum Trans AM, og kem því með skemmtilegri mynd. Apu í þáttunum Simpsons hefur góðan smekk á bílum. Hér er hann að þrífa bílinn sinn sem er að mér sínist 1979-1981 módel af Pontiac Firebird Trans AM :)
Fyrst menn eru að tala um mjög svo hraðskreiða bíla finnst mér við hæfi að senda inn mynd af bíl sem mörgum fannst alveg nógu hraðskreiður (muna ekki flestir eftir “Klúbburinn skynsemin ræður”) ;)
Kínverjar gera ekki aðeins flotta bíla geta þeir gert mjög ósmekklega bíla líka. Þessi bíll er reyndar gerður fyrir túrista en mér finnst það engin afsökun…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..