Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.436 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar CJX Broadspeed - ég átti svona bíl í bílabrautinni minni þegar ég var polli. Ansi vígalegt tæki, 550 hestafla V12. Bílarnir voru með smekklegar brettaútvíkkanir og kæliraufar, létta skel og þróaðri fjöðrun. Þessir bílar slógu mörg met í tímatökum en endust ekki nógu lengi í akstri til að vinna keppni - flottur samt. Hinn bíllinn í bílabrautinni var BMW sexa í Jagermeister litunum, það kemur mynd af honum síðar.

Bilar (0 álit)

Bilar Matra Murena er ákaflega áhugaverður franskur sportbíll. Grindin er galvaniserað og húðað stál en ytri byrði er úr plasti. Vélin er fyrir miðjum bíl, á þessari “S”-gerð frá 1984 2.2l og 142 hestöfl, en það merkilegasta er að bíllinn er þriggja sæta, með þrjá stóla frammí! Þessir bílar er heldur fágætir og verð í samræmi við það þótt hann sé varla dýr, enda sérstakur bíll.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta virðast vera opinberar myndir af því hvernig 5. kynslóð VW Golf muni líta út.

Bilar (0 álit)

Bilar Svona bíl átti ég í bílabrautinni minni sem ég fékk þegar ég var 6 ára gamall… Enn í dag finnst mér kappakstursbílar í þessum stíl lang flottastir. Það fylgdi líka BMW E21 Jagermeister með brautinni og er ég að leita að mynd af honum líka. Það vill svo til að ég á E21 í dag, kannski maður eigi eftir að eiga Jagúar líka :)

Bilar (0 álit)

Bilar Mig hefur lengi langað til að koma mér upp safni af art deco veggspjöldum með kappakstursauglýsingum. Fullkomnar veggskreytingar fyrir bíladellumann og þar sem ég er nýfluttur er mál til komið að stökkva til…

Bilar (0 álit)

Bilar Ótrúlegt sport tæki. Er þetta hjól, er þetta bíll, er þetta SÚPERMAN! Eða þannig. Þetta er allavega skemmtilegt tæki og ég hvet mennt il að lesa sér aðeins til um þetta. http://www.pistonheads.com/roadtests/index.asp?storyId=6958

Bilar (1 álit)

Bilar Mér finnst nú MJÖG leiðinlegt að taka út myndina af Bristol Fighter! En fyrir Blackmoon þá er hér Cadillac sófi - reyndar dálítið dýr á 2200 evrur…. á mobil.de

Bilar (0 álit)

Bilar Ég er ákaflega veikur fyrir köntuðum ítölskum bílum. Þessi Maserati Ghibli Cup fellur því vel í kramið hjá mér og tveggja lítra, 326 hrossa, tveggja túrbínu V6 skaðar ekki. Ef ekki væri fyrir sterabólgin brettin væri þetta úlfur í sauðagæru.

Bilar (0 álit)

Bilar Ég get ekki horft lengur á myndina af skemmdum Trans AM, og kem því með skemmtilegri mynd. Apu í þáttunum Simpsons hefur góðan smekk á bílum. Hér er hann að þrífa bílinn sinn sem er að mér sínist 1979-1981 módel af Pontiac Firebird Trans AM :)

Bilar (0 álit)

Bilar Fyrst menn eru að tala um mjög svo hraðskreiða bíla finnst mér við hæfi að senda inn mynd af bíl sem mörgum fannst alveg nógu hraðskreiður (muna ekki flestir eftir “Klúbburinn skynsemin ræður”) ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok