Ný mynd! Loksins komin ný mynd. Gat ekki setið á mér lengur.

Þetta er BMW 540 með mest öllum M pakkanum, þ.e M fjöðrun, M innréttingu og M lúkki.

Þetta eru hreint út sagt æðislegir bílar. Rétt rúmar 6 sek. frá 0-100 km/klst.

Var að prófa einn sem er gjörsamlega með öllu. Stórum skjá með öllu í, síma, CD-magazine, spólvörn og skriðleikakerfi, Automatic klima (sjálfvirk miðstöð) og fleira og fleira. Æðislegur bíll, og ég er ekki frá því að nú sé ég farinn að hallast að BMW :)





Held þó alltaf sömu tryggð við merkið mitt.