Mini Fékk mér þennan um daginn. Þetta kvikindi er af tegundinni Mini Rover og er með þessa fínu 1,3 L vél sem skilar hvorki meira né minna en sextíu og tveimur hestöflum sem er slatta kraftur miðað við bíl sem er einungis 720 kg að þyngd. Bíllinn er nýskráður 1995 en ég er aðeins 3. eigandinn og sá annar hér á landi, einhver stelpa sem átti hann út í Þýskalandi sem notaði hann bara sem sumarbíl, sem er einmitt það sem ég ætla að gera.
Rover Mini ‘95