Volvo C 70 Nýi convertible sportbíllinn frá Volvo, svaka kerra að því er mér finnst. Fór í Brimborg um daginn, sá þennan bíl, féll fyrir honum. Með hardtop sem fellur í skottið, fallegur bæði með toppinn uppi og niðri, rúmgóður miðað við þessa stærð af bíl (gat næstum séð fæturna mína passa í aftursætið),og lítur mjög vel út í alla staði. Svo er þetta náttúrulega Volvo, svo maðður getur alveg gengið að því að þessi bíll sé sæmilega öruggur og gæðin séu ágætlega mikil.

Æðislegur bíll, ég væri meira en til í einn svona. Verst að hann kostar svo mikið….