Innlegg: Fös 20. Jún 2008 00:09 Efni innleggs: Bmw 325 e36 Bsk til sölu

——————————————————————————–

Hér er ég með einn gullmola til sölu.

Bíllinn er keyrður 21x.000(1994) og vél 35.000 minna og úr ssk 525(1995).
Búið að fara yfir margt og mikið í bílnum á meðan hann er búinn að vera í minni eigu, þar á meðal búið að skella nýrri kúplingu í hann, báðar spindilkúlurnar að framan, handbremsu barka( eða hvað sem það heitir ) og fleira. Gírkassinn í honum er helvíti góður og svo er hann á nýlegum heilsárdekkjum.
Það sem er að bílnum í augnablikinu er eftirtalið : alternatorinn er eitthvað leiðinlegur, smá óhljóð í honum þegar bíllinn er í lausagangi, bíllinn er eitthvað pínu að ofhitna, ég skoða það og það verður komið í lag fyrir sölu, einn skynjarinn í bremsunum er líka búinn að losna og svo er loftpúðinn í stýrinu sprunginn for some reason, ætla að kaupa nýtt stýri í hann, og svo virkar ekki að opna rúðuna bílstjórameginn, mótorinn í lagi bara tannhjólið í eitthverju fokki.
Bíllinn er með topplúgu og cruise control sem virkar bæði mjög vel, langaði að koma því á framfæri ;D Hann er líka með M3 replica spegla, lip spoiler og annan lítinn spoiler efst á afturrúðunni, og svo er líka búið að stækka púströrið.

Verð: Komið með tilboð, í versta falli verður sagt nei ;D

Ástæða sölu: er búinn að eiga þennan bíl í eitt ár og hann er búinn að vera algjör draumur, enn ég held að það sé kominn tími til að ég færi mig uppí eitthvað með aðeins meira power

Og svo ef áhugi er til staðar, þá er hægt að bæta við alpine sound system-i fyrir 60þúsund til viðbótar, í þeim pakka er keila, r-type hátalarar að framan og aftan + tweetarar og alpine head-unit(spilari).

Sími : 848-3133
Msn: bjarki69@msn.com
Nafn: Bjarki

Vill líka koma því á framfæri að kallinn er með lesblindu, og þar af leiðandi ekki sá besti í stafsetningu ;D

Myndir:
http://a555.ac-images.myspacecdn.com/images01/103/l_89c43dffb4e1c6473c3e64b049ada782.jpg

http://a582.ac-images.myspacecdn.com/images01/55/l_2d8bd6b4820c180af1bfb46bc9514345.jpg

http://a935.ac-images.myspacecdn.com/images01/112/l_1b5e9108fa1c6009dee734d16efc266e.jpg

http://a252.ac-images.myspacecdn.com/images01/97/l_91fc58b26885c52e4d9ba83bf36330fb.jpg