Sælt veri fólkið

Mig langar bara að vara fólk við rúðupiss frá N1!
Rúðupiss þetta sem umræðir er selt í brúsum í verslun N1 og er hreinlega langt undir standart kröfum um upgufunartíma!
Ég keypti þetta piss í vikuni og hef síðan þá verið nálægt því að keyra útaf og lenda í árekstrum í fjölda skipta síðan þá því ég keyri rúma 1000km á viku.

Ástæða þess að ég er við það að keyra útaf eða lenda í árekstrum er að ég sprauta þessu rúðupissi á rúðuna og nota þurkurnar til að skafa drulluna af. Undir venjulegum skringumstæðum hreinsast rúðan á c.a. 1 til 6 sek. sem er alger hámarkstími þegar að keyrt er á 90 km hraða.
En með þetta piss hefur tíminn verið frá 15 til 45 sek þar sem að ég sé hreinlega lítið sem ekkert útum rúðuna og ég er með svokallaða fullkomna sjón!
Ekki vildi ég vera með lélega sjón eða náttblindur því þá væri ég sjálfsagt bíllaus í dag eða uppá spítala útaf þessu piss drasli!

Ég vill bara vara ykkur við því að nota þetta rúðupiss!

Ég vill benda á að þessi viðvörun er bundin við það sem er í brúsunum sem að selst inná stöðvunum en ég hef ekki reynslu af fleyri pissum frá N1.

En hafið varan á þegar verslað er rúðupiss á N1

Kv. Ölvaðu