BMW 540i E39

Árgerð: 1996
Litur: Dökkgrænn.
Skipting: Sjálfskiptur.
Vél: 4.4l V8 - 286 hestöfl og 420 nm í tog.
Drif: Afturhjóladrif.
Dekk/felgur: Vetrardekk á 16“ BMW álfelgum, sumardekk á 18” BMW álfelgum.
Keyrður: 175.xxx km.
Tími 0-100 km/klst: 6.3 sekúndur.
Mesti hraði: Takmarkaður í 250 km/klst.
Lítrar í bensíntanki: 70 lítrar.
Ásett verð: 1.35 milljón.


Ég er sem sagt að selja þennan frábæra bíl, BMW 540. Hann vinnur ótrúlega vel og togar ótrúlega mikið. Þessi vél er hreint yndi og er hljóðið úr henni yfirnáttúrulega fallegt. Hann er nýlega keyptur af mér og pabba mínum en hann virðist ekki henta okkur þar sem hann verður mikið skólabíllinn minn í vetur. Á meðan bíllinn var í okkar eigu höfum við skipt um slöngu frá vatnskassa að blokkinni og aðra samskonar slöngu líka. Þar að auki skiptum við um dempara að framan, bremsudiska og klossa og fleiri bremsuhluti að aftan og framan, stýrisspindla, hosur og margt, margt fleira. Þetta allt kostaði í kringum 300 þúsund kallinn svo að það er mikill plús. Hann eyðir í kringum 13-14 lítrum á hundraðið samkvæmt aksturstölvunni og verð ég að segja, ef það er satt, að það sé alveg nokkuð góð eyðsla miðað við stærð vélar.
Þessi bíll er með fínasta hljóðkerfi, dökkar rúður að aftan, leðurinnréttingu, Climate Control, frábæra sjálfskiptingu með steptronic möguleika, stórt skott og margt, margt fleira.
Sumardekkin sem fylgja eru mjög eydd en felgurnar mjög fallegar.
Það sem mætti laga er hægri afturglugginn, það er ekki hægt að skrúfa hann upp né niður og vinstri afturhurðin opnast ekki innan frá. Þetta tvennt ætti að vera mjög auðvelt að laga.
Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma 699-6129, 899-2005, 663-2262, 552-6129 eða sentu mér bara personal message.

Með vonir um áhuga á frábærum bíl, Sindri.

P.S. Ég er að auglýsa fyrir vin minn, auglýsingin var tilbúin og ég bara copy/paste-aði á huga. Endilega hringið í símanúmerin hér að ofan eða sendið mér pm. Ég get sent myndir til þeirra sem hafa áhuga á, ekkert mál.