Þá er enn einu sinni kominn vetur, með öllu því sem honum getur fylgt. Þó að við íslendingar ættum að þekkja eitthvað til hans (búum jú á mörkum hins byggilega heims) þá kemur hann alltof mörgum á óvart.

Fyrir ca. ári síðan skrifaði ég grein um vetrarundirbúning jeppa á hugi/jeppar. Margt sem á við um jeppa getur einnig átt við um fólksbíla (þó þeir þurfi ekki að kynnast eins erfiðum aðstæðum). Ég ákvað því að endurskrifa greinina, með tilliti til bíla, en læt eitthvað af jeppatengdu efni fylgja með.

Vetrarundirbúningur:
Smyrja framendann (hjöruliðskrossa ofl.) og athuga með slit, skipta um olíu á mótor og smursíu.
Ekki er vitlaust að smyrja fleira fyrst maður er hvort sem er orðinn skítugur. Gott er að smyrja við allar hurðir, alla lása og ekki má gleyma lásnum við húddið.

Skipta um kerti og athuga þræði (og mætti jafnvel skoða kveikjuhamarinn og lokið). Ef kveikjan er í góðu lagi þá þarf yfirleitt ekki að hugsa mikið um hana (auðveldarar að lifa eftir að maður hætti að þurfa að hugsa um platínur)

Ef frostlögurinn er farinn að verða ryðlitur þá er kominn tími að skipta um hann, frostlögur endist ekki endalaust (þó margir haldi það) og eftir nokkur ár fer hann að missa eiginleika t.d. til að forða mótornum frá ryði. Ef þú veist ekki hve gamall frostlögurinn er þá er heillaráð að skipta um hann og skola út kælikerfið. Besta blanda hefur reynst 50% af hvoru, frostlögur er ekki eins góður til að flytja hita eins og vatn svo það borgar sig ekki að nota aðeins frostlög.

Á norðlægum slóðum er það svo nauðsynlegt að láta mæla frostþol kælivatnssins. Það hafa ófáir bílaeigendur komið að vélum sínum frostsprungnum af því að þeir gleymdu þessu smáatriði.

Athuga viftureimar og hosur, skipta um þær eða herða eftir því sem ástæða er til. Ég lenti í því í miklu frosti um miðjan nóvember að viftureim slitnaði, lenti á hinni og skellti henni útaf. Eina sem ég fann var smá kippur í stýrið þegar vökvastýrið datt út. Leit strax á hitamælinn og sá að vélin byrjaði strax að hitna. Þarna sat ég strandaður í kolniðarmyrkri (við endann á Úlfarsfelli) og var að verða of seinn í skólann. Varð að skilja trukkinn eftir og koma síðar. Ég varð því að skipta um viftureimina í hörkugaddi við fjölfarna umferðaræð, mæli ekki með því!

Athuga bremsur, olíu á drifum, millikassa og gírkassa.

Hér á landi eru menn oft kærulausir með bremsur. Þá er ég ekki að tala um klossa eða borða heldur vökvann sjálfan. Í ameríku er oft talað um að það sé ágætt að skipta um hann á tveggja ára fresti. Ástæða þess er að það safnast vatn í vökvann, og við mikinn hita getur það vatn farið að sjóða. Ekki má heldur gleyma að rakinn getur valdið tæringu innanfrá. Það er því mikilvægt að fylgjast með bremsuvökvanum og bremsuslöngum.

Athuga ástand dekkja, dekk eru eini snertipunktur bílsins við götuna, og léleg dekk geta skilið á milli lífs og dauða.

Fara yfir öll ljós, ekki slæmt að athuga líka vasaljósið sem ég setti í hanskahólfið um árið og treysti á að sé í lagi þegar á þarf að halda (fátt leiðinlegra en vasaljós án rafhlaðna þegar á reynir).

Þrífa allar rúður og bílinn að innan, skemmtilegra að gera það núna en þegar frostið byrjar að bíta.

Spreyja silikoni á alla hurðarlista (alltaf gaman að koma að frosinni hurð)

Kíkja við á næstu bensínstöð og láta þá athuga rafgeyminn undir álagi.

Nú er rétti tíminn til að setja tvær rúðusköfur í bílinn, af hverju tvær spyr kannski einhver, hafið þið einhverntíma lennt í því að brjóta sköfu á versta tíma (og þurft að nota geisladiskahulstur til að bjarga ykkur ;-)

Setja ísvara í bensíntankinn, ágætt að losna við rakann.

Ekki er svo vitlaust að skella góðum hlýfðarklæðnaði, teppi og kuldaskóm útí bíl.

Góður spotti eða stroffa til að draga hina upp ;)

Eflaust er margt sem vantar í þessu upptalningu en þá er bara að bæta því við…..

Þó þetta virðist vera langur listi þá tekur þetta ekki langan tíma, hægt að dunda sér við þetta á laugardagseftirmiðdegi.

Það er betra að eyða smá tíma í að ganga frá þessu áður en maður lendir í vandræðum, því óneitanlega er þægilegra að dunda sér við þetta inn í bílskúr en að takast á við afleiðingar bilaðra hluta í skítakulda fyrir utan vinnustað eða meðfram þjóðvegum landsins.

Ef ég hef gleymt einhverju þá bætið þið bara við :)

JHG
E.s. Þessi grein byggist á annarri grein sem ég skrifaði á hugi/Jeppar og byggist að mestu leiti á henni, og að hluta á svörum sem hún fékk. Hugmyndin kviknaði við lestur á grein um sama efni á http://www.chuckschevytruckpages.com/winter.html og eitthvað af þessu efni er ættað þaðan.