Bókatíðindi voru að renna inn um lúguna hjá mér og ég er nú búin að skoða hvað er í boði og merkja við hvað mér líst á.

Það væri nú forvitnilegt að vita hvaða bækur hugarar vilja fá í jólapakkann sinn.

Helst á mínum lista er Harry Potter, Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur og svo trílógían eftir Phillip Pullman.

Hvaða bækur langar ykkur til að lesa??