Persónulega finnst mér Borat vera það fyndnasta í þáttunum (reyndar finnst mér líka geðveik þegar hann fær tónlistarmenn, lætur þá taka lagið og mixar eithvað techno d´n´b. dæmi inn í). Allavega þvílík snilld að fara í þetta gervi (er allveg viss um að Borat sé Ali G) og gera grín Breskum siðum. Allger snilld þegar hann fór í snobb matarboðið og þambaði vínglasið, talaði um hægðir og kynlífið hjá sér, fór í robkeppni og endaði með því að faðma og kyssa alla bless. Ég hélt líka að ég myndi deyja úr hlátri þegar gæjinn fór að skoða refaveiðarnar, hitti dýraverndunar liðið og lýsti því yfir Kasakstan (eða What ever land) væru heimsins bjarndýra veiðimenn

Borat er snilld og aftur snilld