Af hverju ætti ríkið, eða einhver yfir höfuð, að niðurgreiða lán sem fólk tók bara af því þau eru orðin eitthvað óþægilegri en þau voru? Það eru til úrræði fyrir þá sem eru í sem mestum vanda, greiðsluaðlögun og slíkt, og ég sé ekki af hverju það ætti að vera eitthvað meira fyrir fólk sem getur alveg borgað. Og það er alveg slatti, ef ég man rétt voru í kringum 77% heimila með vel viðráðanlega stöðu.