Já, 3500 er eilítið hátt verð en þau eru níu, þau þurfa gistingu og fæði, það þarf að borga hljóðmanni, leigja stað, prenta auglýsingar og miða….og svo framveigis og svo framveigis. Í staðinn erum við hins vegar með 10% afslátt af öllum Constellation plötum þannig að þær kosta flestar 1850 (nema hin tvöfalda Lift Your Skinny fists' sem er aðeins dýrari og síðan ep-plöturnar sem eru því aðeins ódýrari). Það lætur enginn heilvita tónlistarmaður þessa tónleika fara fram hjá sér, jafnvel þó...