Persóna mánaðarins er að þessu sinni hin furðulega vinkona Harry’s Nymphadora Tonks. Tonks, eins og hún kýs að láta kalla sig, hefur þann meðfædda eiginleika að geta breytt útliti sýnu að vild. Það stafar að því að hún er svokallaður hamskiptingur. Frá náttúrunnar hendi hefur Tonks þó hjartalaga, fölt andlit og dökk brún, tindrandi augu. Hún breytir reglulega um hárgreiðslu, og við höfum meðal annars kynnst henni með broddklippt, fjólublátt hár og bleikt, broddklippt hár, sítt og rautt hár,...