Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Takk fyrir mig (6 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Vildi bara kveðja alla :) hef ákveðið að draga mig í hlé hérna. Af persónulegum ástæðum hef ég hvort sem er ekki verið að gera neitt gagn og nú þegar þarf að leggja mig inná sjúkrastofnun í óákveðinn tíma, þá hef ég ákveðið að draga mig bara endanlega í hlé frá huga. Ég hef látið aðra fá ókláraðar greinar t.d. Persóna Mánaðarinns og þess háttar og vona bara þau sjái um þetta fyrir mig ;)

Minerva (0 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Minerva -ae f. [goddess of wisdom and patroness of arts and sciences]. Transf. , [wit, art, skill]; esp. [working in wool]. Fannst sniðugt þegar ég rak augun í þíðingu á nafninu hennar á latínu :)

Latína (6 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Er einhverstaðar á netinu þar sem ég get fundið orðabók sem þíðir yfir á latínu? Vantar virkilega að finna þíðingu á nokkrum orðum nefnilega. Einhver sem getur aðstoðað mig?

Smyglaði hassi í leyniklefa Harrys Potter (131 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Sally Fyrst er 37 ára dönsk kona. Hún var handtekin í Leifstöð, þann 30. september fyrir að hafa smyglað rúmum 320 grömmum af hassi hingað til lands. Hassið var falið í danskri útgáfu af bókinni Harry Potter og leyniklefinn, sem útleggst á dönsku Harry Potter og hemmelighedens kammer. Sally er einstæð, tveggja barna móðir og í ákæru frá sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli kemur fram að hassið hafi verið ætlað að verulegu leiti til sölu hér á landi í hagnaðarskyni. Hass frá Köben Sally...

Nöfn...? (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Vitið þið um einhver fleiri nöfn eins og Viktor, Hektor og þannig…einhver fleiri sem enda á -ktor sem þið vitið um?

Hvaða mynd? (2 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er að reyna að muna hvað ein bíómynd heitir. Þetta er gelgjumynd, hún er um stelpu sem stendur sig geðveikt vel í skóla, er ekki vinsæl og þetta venjulega. En svo kynnist hún vinsælustu stelpunni, byrjar að stela, drekka, dópa, skera sig og kemst í bara stanslaust vesen. Veit einhver hvaða mynd ég er að tala um?

Íbúð (7 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Getur einhver bent mér á síðu þar sem ég get fundið upplýsingar um íbúðir sem eru til leigu? Hvað kostar mikið, hversu stórar og bara allar upplýsingar.

Smúla eða Spúla ? (51 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvort segir þú “smúla” eða “spúla” ? Mikið búið að þræta um þetta í mínum bekk, persónulega segi ég smúla.

Eru alltaf sömu þrautir á þrígaldraleikunum? (11 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 6 mánuðum
1) Eru alltaf sömu þrautir á þrígaldraleikunum? 2) Ballið sem var á fjórða ári Harrys. Er það alltaf þegar þrígaldraleikarnir eru? Ef svo er, hvenær er það. Nei það eru þær ekki. Á hverjum einustu galdraleikum koma nýjar þrautir, og alltaf voru þær lífshættulegar þar til á leikunum í fjórðu bókinni. Þrígaldraleikarnir voru fyrst haldnir fyrir 700 árum sem vináttuleikar á milli þriggja stærstu galdraskóla Evrópu – Hogwarts, Beauxbatons og Durmstrang. Leikarnir sem haldnir voru á fimm ára...

Við hvaða lönd? (5 álit)

í Bretti fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Við hvaða lönd eru brimbretti mest stunduð? Er að velta því fyrir mér uppá að ég er að hugsa um að fara út sem skiptinemi og vil geta stundað brimbretti þar sem ég lendi :)

Blogskins (1 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Er einhver hér sem hefur notað síðuna www.blogskins.com ?

Of stór skammtur? (39 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvað skeður ef manneskja tekur inn of stóran skammt af verkjalyfjum…? 9000 mg tæp…?

Reyndu að selja stolnar bækur (10 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Breska lögreglan handtók í dag tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt að selja stolin eintök af nýjustu bókinni um galdrastrákinn Harry Potter, en bókin á að koma út 16. júlí í sumar. „Tvær bækur fundust og þær eru nú geymdar á öruggum stað í sönnunarskyni,“ sagði lögreglan í Northhamptonshire á Englandi. Mennirnir voru handteknir í Kettering, um 130 kílómetra norður af Lundúnum. Lögregla sagði að vísendingar hefðu borist um að einhver væri að reyna að selja eintök af bókinni og að...

Vs. (6 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
eru þessir korkar endalausir O.o ekkert smámagn af þessum korkum… O.o fær fólk aldrei nóg af þeim??? ég er komin með nóg…!

Uss (50 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Urrg, hafið þið lent í því að þegar ykkur virkilega vantar að tala við einhvern. Virkilega vantar að kynnast einhverjum…þá er enginn online og enginn til að tala við og mann langar bara mest til þess að reita af sér hárið og stökkva ofan í næsta skurð :/

Hjálp! Á einhver? (11 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hjálp! Nú er ég í stórum “vandræðum.” Felstir myndu ekki kippa sér upp við þetta en ég lít á þetta sem stóran missi, eins og ég hafi misst part af mér. Tölvan mín hrundi núna í síðustu viku, formattaði sjálfa sig og ástamt öllum öðrum persónulegum hlutum missti ég sögurnar mínar. Ég hef talað við ófáa hugara í gegnum tímann sem ég hef verið hér, bæði sem ninas og tonks og sent ófáum sögurnar mínar. Er einhver sem á einhvera af gömlu sögunum mínum eða spununum? Þessum sem ég sendi aldrei inn...

Vekjaraklukka (2 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Veit einhver um eitthvað forrit eða vefsíðu sem er þannig uppsett að það láti Tonks litlu (tölvuna mína) hringja á mig í fyrramálið svo að ég geti komið mér fram úr rúminu á skikkanlegum tíma?

Könnunin (4 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ætti að vera í fleirtölu ;) bækurnar…

Kannast einhver við? (16 álit)

í Bækur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Kannast einhver við þetta? Áður fyrr las ég alltaf 1-2 ágætlega þykkar bækur á dag…venjulega 1 en ef þær voru bara 100-200 tók það mig bara sólarhring og þá meina ég venjulegan virkan dag með fullri vinnu og svona…en núna hef ég engan tíma, er alltaf í tölvunni og les ekkert! mér finnst það ekki gott =/ Fleiri sem kannast við þetta?

Ný síða... (3 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Nú er ég komin með svo leið á að vera með eins bloggsíður og allir. Svo rakst ég á síðu sem bauð uppá blogg sem nær enginn var með…en nú eru allir komnir með það. Svo ég var að spá í að fara bara vinna í að gera mitt eigið blogg. En þá er spurningin, í hvaða forriti er það best?

Bobby Fischer (2 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég ætla byrja á því að biðjast afsökunar á því ef að nafnið hans er vitlaust skrifað, annars gæti mér ekki staðið meira á sama. En það er hitt, er þetta eitthvað sanngjarnt? Mér finnst það ekki! Fyrst var þetta eitthvað svona þegar ég heyri af þessu máli, þá var ég á því að hann ætti að fá að koma til landsinns, og mér fannst það í lagi. Góðu lagi, en þegar kemur að ríkisborgararéttinum. Hvað hefur þessi maður gert til að vinna sér inn fyrir honum? Ég hef verið að velta þessu mikið fyrir...

Hvaða bækur? (28 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hvaða bækur eigið þið? Nú bara verð ég að forvitnast =P Ég sjálf á Harry Potter 1, 2, 3, 4 og 5 á íslensku og einnig allar á ensku. Svo á ég 1,2 og 4 á dönsku og 4 á hollensku. Hvað um ykkur hin?

Erum við jafn heppin og við höldum? (14 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég hef mikið verið að velta einu fyrir mér í dag, erum við jafn heppin og við teljum okkur vera? Ég man þegar ég var lítil fékk ég mjög oft að heyra það hvað ég væri heppin, að vera heilbrigð lítil stúlka og eiga marga að. Að ekkert væri að mér. Og nú eftir að systir mín fæddist veit ég ekki hversu oft mamma hefur ekki setið með hana eða setið og horft á hana og sagt svo við mig “sjáðu hvað við erum heppin að eiga heilbrigða litla stelpu, það er ekki svo gefið að eignast þrjú heilbrigð...

Stigspróf (65 álit)

í Klassík fyrir 19 árum
Hverjir hér eru á leið að taka stigspróf í hljóðfæraleik? Eða þá spyr ég aðalega, er einhver hér á leið að taka prófið í fiðluleik? og tel ég þessa spurningu eiga heima hér á áhugamálinu “Klassík” þar sem fiðlan er mjög klassískt hljóðfæri. Hvað verður þá spilað á prófinu? Svona ef það er einhver að fara taka það annar en ég =P sem ég veit, en ég á við annar hugari. Ég er á leið að taka Grunnstigspróf í fiðluleik og það sem ég hef í samráði við fiðlukennarann minn ákveðið að spila er: Æfing...

Kannanir...spoiler... (1 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum
Þarf ekki líka að gæta að könnununum? Eins og sú sem er í gangi núna, ef þetta væri ekki eitthvað sem allir vita. Ég er að reyna halda mig frá spoilerum af bestu getu, hvað ef ég hefði ekki vitað þetta? Og svo kemur könnun um hver ég haldi að deyji =/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok