Ég bara verð að tala aðeins um verndarengla, eða hvað maður á nú að kalla það, fyrst að þessi skoðanakönnun um þá er í gangi! Mér finnst, og hefur alltaf fundist einhver vaka yfir mér. Það er eiginlega alveg sama hvað ég geri… ef ég óska mér eitthvað, eða vona eitthvað alveg rosalega mikið þá yfirleitt fæ ég það. Oftast ekki nákvæmlega alveg eins og ég vildi, en nálægt því. T.d. ætlaði ég að panta tíma hjá Kírópraktor um daginn, og þar sem ég var mjög tímabundin alla vikuna eftir, vildi ég...