Geltir kettir míga ekki inni hjá öðru fólki, kannski eru til undantekningar en ég veit ekki um þær. Auðvitað á að gelda kettina strax um 6 mánaða aldur, ég hef alltaf gert það og fyrr fara þeir ekki út. Það þýðir ekkert að kenna öllum eigendum útikatta um, þetta eru örfáir svartir sauðir sem finnst það eitthvað mannúðlegra að gelda þá ekki. Ég hef verið með útiketti í nokkur ár og aldrei fengið kvartanir, það skal tekið fram að allir mínir kettir hafa verið merktir að öllu leyti. Kveðja, IceCat