Öllum kisum finnst gaman að leika, sérstaklega við þig. Hvort sem þú átt kettling eða fullorðin kött er leikur mikilvægur hluti af daglegu lífi og hreyfingu kisunnar þinnar. Leikur er sérstaklega mikilvægur fyrir kettlinga. Með því að leika við þá og veita þeim athygli verða þeir betur búnir undir það að vaxa og stækka og verða sjálfstæðir kisueinstaklingar. Það sem kettlingar læra af leiknum er t.d. veiðifærni, varnartækni og að hafa betri stjórn á sínum eigin líkama. Kettlingar þarfnast...