Já, ég ætla bara að fara að vakna aðeins fyrr og hvetja hann til að koma í kapp eða eitthvað!! Ég prufaði það í gærmorgun þegar við komum heim eftir að hafa sótt hann á leikskólann, þá “bað hann mig” (sagði mér) að hjálpa sér úr gallanum sínum, húfu og skóm. Ég veit að hann gerir þetta sjálfur á leikskólanum, þannig að ég sagði nei, nú skalt þú gera sjálfur, þú ert svo duglegur.. Hmmm.. hann hélt nú ekki!! Þóttist hafa lamast fyrir neðan mitti og lét sig falla á gólfið! Þvílík dramatík!!...