Tveir eldri drengirnir voru á leikskóla, yngri dóttirin var heima og svo var konan ófrísk að öðru sem hún eignaðist í maí 2001, daginn sem Smári litli var jarðaður. Aldrei var ég vör við svona mörg börn hjá þeim, þetta bara stenst ekki, því að það er ekki pláss fyrir svona mörg börn í húsinu þeirra. Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur eða að það eigi eftir að útskýra þetta eitthvað betur. Ég hefði náttúrulega aldrei farið með strákinn minn þarna ef að það væru svona áberandi of mörg...