Til að opna frosinn lás, þá er gott að setja heitt vatn í poka, og halda pokanum svo við lásinn. Það ætti að þýða lásinn, án þess að vatn setjist inn í lásinn, og valdi frekari vandræðum. Þegar búið er að þýða lásinn, þá mæli ég með að sprauta WD40 inn í lásinn. Það efni er mjög gott, bæði til að liðka lásinn, og eins hrindir það vatni úr lásnum. Bara setja rörið á WD40 brúsanum inn í skránna. Láta svo efnið leka vel um lásinn, fara með lykilinn í skránna, opna og loka nokkrum sinnum, og...