Venjulega þá eru úðkerfi í stórum byggingum, svo sem Smáralind, tengd þannig að aðeins hluti þess fer í gang í einu. Þar sem eldur er oftast aðeins bundin við hluta hússins, er algjör óþarfi að úða vatni yfir alla bygginguna, og valda með því óþarfa tjóni og óþægindum, ég vildi allavega ekki fá kaldasturtu þegar ég væri í bíó af því að það kom reykur í hinum enda hússins. Hins vegar skil ég engan veginn hvernig á því stendur ef rétt er, að ekki skuli öll byggingin hafa verið rýmd, um leið og...