Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kallað á hjálp. (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
í svarta skugganum maðurinn bíður sterkari en hún og á honum síður ólgandi ofbeldi á hana dynur óundirbúin á hjálp hún stynur í neikvæðu húmi næturs neðar í götunni grætur saklaus ung stúlku undur utan og innan rifin í sundur.

verum vinir. (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvernig átti ég að geta þetta, þegar þú varst alltaf á mig að skvetta lítt fögrum orðum. ekkert var eins og forðum. við hvort annað vorum vön að tala og þorsta okkar svala, við kúrðum undir stórri sæng og yfir hvort öðru, héldum verndarvæng. ég elskaði þig og þú elskaðir mig, saman áttum framtíðar draum sem flæddi fram í stríðum straum. en svo fór þetta svona á milli okkar kom önnur kona, sem var stór vandi og sleit okkar sambandi. þó við séum ekki lengur saman þá þarf ekki, hætta að vera...

Þreytt (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
sofum svefni svefnleisysis algleymi alheimsins alein alltaf alein sofandi

Lokaður rammi (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
skilin eftir í rósargarði himinháar rósir þéttar saman þyrnarnir stinga og særa lítið pláss ekki hreyfa sig engin áhætta enginn sársauki lifðu, líkt og allir hini

ENDIR (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ljúktu við orðin þín þó þau særi mig ekki treysta því að ég berji þig ekki þú veist að ég hata þig rjóð í kinnum af reiði rota þig með kúpunni þú átt það skilið fyrir að blekkja mig ég líð það ekki að svona sé komið fram við mig því ég er yfir þig hafin nú ert þú dauður og grafinn.

Án þín (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
rennur rólega til hafsins rennur burt frá mér hverfur sem hluti af því heitir ekki neitt kissir mig kossinum blíða sendir strauma hlýja stend hér ein, án þín

Ást... (3 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hún sat og horfði dreymandi fram fyrir sig og augu hennar leituðu ósjálfrátt að fallega andlitinu sem hún dáðist að á hverjum degi. María sat einni röð framar og tveim borðum til hægri frá Lindu. María var svo gáfuð og skémmtileg. Hún horfði á Maríu brosa til Sigga, þau pískruðu eitthvað og hlóu, ohhh… hún hlær svo fallega. Linda brosti til Maríu í von um að hún myndi taka eftir henni og kannski tala við hana, ef það myndi gerast þá ætlaði hún að segja henni hve sæt og æðisleg hún væri. Ég...

Málverkið... (5 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hann fór inn á vinnustofu sína og bjóst ekki við að gera neitt, hann hafði ekki gert neitt lengi. Hann tók upp pensilinn og byrjaði að mála en endaði með því að grýta verkinu þvert yfir vinnustofuna, svo það lenti með látum á veggnum. Hann opnaði vodka flöskuna sem stóð á borðinu innan um litina og penslana, hann fékk sér drjúgan sopa og gretti sig aðeins, fyrsti sopinn var alltaf aðeins of sterkur. Næsti varð fínn og þar næsti á eftir og svo næsti og næsti. Hann átti ekki við neitt vandamál...

Eitt skot (5 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hún tók byssuna upp úr töskunni og lagði hana frá sér á borðið, hún starði á kalda hlutinn fyrir framan sig, það hafði ekki verið erfitt að redda sér þessum hlut eyðileggingarinnar. Að hugsa sér að þetta hafi verið búið til bara til að valda eyðileggingu og hvert skot í byssunni var orðið að örlagavaldi fyrir mannkynið. Allt sem yrði í vegi þessa örlagavalds, fengi endalegt ör og óendanlegar breytingar. Hún setti skotin í byssuna og fór yfir plottið enn einu sinni, það mátti ekkert fara...

GETUR ALLT (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
góðir dagar gráta þig gera eingum mein göngum hægt í gegnum þennan heim gefðu mér aftur gleðina gafstu mér hana áður gleymdist hún og hvarf gráturinn tók af mér völd gerist lítil og veik geng ég aftur heim

ástin mín (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
fögur augun ljóma fullkomið traust, saklaus og góð sál er horfir af aðdáin á mig, það tók sinn tíma að fæða þig.

Ég elska (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég ligg úti á engi horfi upp til þín loka augunum og finn fyrir þér, kossar þínir falla á andlit mitt líkt og regnið snertir mig, vindurinn ýfir hár mitt er þú rennir fingrunum í gegnum það, grasið leikur blíðlega við mig er þú elskar mig sólin brýst fram fyrir skýin þegar ég horfi á þig bara vegna þess að ég elska þig.

Djamm (10 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
reykurinn, mökkurinn hávær tónlistin troðið af fólki sé þig í fjöldanum þú horfir á mig þögnin, ljósið tekur völd, sé bara þig fólkið horfið ég og þú við færumst nær varir mætast og draumar rætast

RIFRILDI ELSKENDA (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
bjallan hringir þú vannst þessa lotu en ég þá fyrstu þú í öðru horninu og ég í hinu og á milli okkar endalaus slagsmál

SVEFNLEYSI (5 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
sofnar svo seint augun opin og stara á ekkert, rykið fellur og skrýður á himnunni, augun þorna, loka þeim svo tárin renna, ókyrr nóttin sem getur ekki sofið fyrir hávaða ég heyri þó ekki hrotur mannana en get ekki sofnað fyrir hávaða því nóttin öskrar svo hátt “viljið þið hafa látt”

FORTÍÐ TILHEYRIR EKKI FRAMTÍÐ (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
í útjarði hugans á ystu nöf liggur djúp gröf alsetin sárum sem urðu til fyrir mörgum árum grafandi þessa gröf án þess að verða þess vör og fundið hefur rétt svör því þessi sára fortíð tlheyrir ekki nýrri framtíð

STAÐNAÐ HJÓNABAND (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
í köldu herbergi skjálfa þau tvö hún uppi og hann niðri á milli þeirra er bil

ÞÚ OG SVO ÉG (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ef þú grætur þá græt ég ef þú syngur þá syng ég ef þú hatar mig þá hata ég þig ef þú brosir þá brosi ég ef þú reiðist þá reiðist ég ef þú elskar mig þá elska ég

SKÖPUN (9 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
hvílíkur heimur að láta mig fæðast án handleggja án fótleggja ég stari án höfuðs því búkurinn er allt sem ég hef og það er gat ofan í mé

þrá (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þrá eftir upphafi Upphafi af lífi Lífi fullu af gleði Gleði sem kemur frá þér Þér tókst það Það sem enginn hefur getað Getað fullnægt þeirri þrá

NAUÐSIN SÁLAR (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
að pæla spæla og kannski skæla er nú svolítið gott þó það þykir ekki flott

Viðurkenning tilverunnar. (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Horft út um glugga Snjór á trjám er hreifast í takt við vindinn Sem stígur sinn vilta dans Spor sem enginn kann Aðeins stjórnað af vindinum Dansar villt svo snjórinn fellur Fellur hægt til jarðar Og kyssir jörðina

snerta þig (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég horfi á þig Þú horfir á mig Hvað ertu að hugsa Ertu að hugsa það sama og ég Þú brosir Mig langar að teigja fram hönd mína Og snerta þig En þú snýrð þér við Og gengur í burt Ég stend eftir Og skil ekki neitt í neinu Var það eitthvað sem ég sagði Var það eitthvað sem ég gerði Ég lít í spegilinn Ég lít vel út Ég horfi ráðvilt á eftir þér Ég sest niður vonsvikin og sár Þú varst ekki að hugsa um mig líkt og ég um þig Þú varst aðeins að vera kurteis

Það tókst (29 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég var að tala um sálfarir fyrir ekki svo löngu og það hvað ég brást illa við þegar ég var næstum búin að fara í eina svoleiðis ferð, en það tókst núna í þetta sinn, ég varð vör við það að þetta væri að byrja svo ég sagði sjálfri mér að slappa af og gerði það, ég stífnaði þó upp þegar ég fór að finna sársaukann frá aðskilnaðinum, en einhvernvegin tókst mér að slaka nógu mikið á svo að þetta tókst og ferðin byrjaði. ég byrjaði eiginlega á því að fara fyrir utan bensínsöð sem er fyrir framan...

Trúðu á mig (9 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hann þurrkaði svitann úr lófunum sínum í buxurnar. Svitinn spratt fram allstaðar, bara þetta kvöld, því hann vissi hvað hann þurfti að gera. Hann horfði yfir götuna, á stóra húsið, sem beið þar í skugganum frá trjánum. Gæti hann ekki bara snúið við og farið heim… nei, hann varð að gera þetta, það hafði aldrei verið eins dimmt og þetta kvöld. Hann beið enn í skugganum af sjoppunni sem hafði verið lokað fyrir um klukkutíma, svo núna var hann einn og beið og fylgdist með húsinu. Hann fleygði...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok