Búinn að horfa á FireFly seríurnar og Serenity. Verð að segja að ég varð strax ástfanginn af þessu. Það eru einhverjir orðrómar í gangi með að önnur sería líti dagsins ljós en það eru bara orðrómar ;-) Mundi samt ekki kvarta ef þeir rættust :-D
Satt. Maður lék sér aðeins á honum, verður náttúrulega að prufa tækið almennilega ;-) Synd samt að 1300 vélin sé ófáanleg á klakanum, væri alveg töluvert skemmtilegri bíll með smá auka krafti :-)
Ég mundi byrja á að ná mér í Knoppix og skoða Linux umhverfið áður en þú ferð út í að sneiða niður harðadiskinn. Knoppix er mjög skemmtilegur :) Svo er líka Ubuntu Live CD. Eftir að hafa skoðað Ubuntu hef ég ákveðið að nota hann í framtíðinni. Fedora er líka fínn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..